Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Matreiðsla:
útbúið einfaldar og hollar máltíðir með aðstoð,
Heimilisfræði 3, (námsefni í heimilisfræði fyrir 3. bekk), bls.5-20.
Verklegar æfingar í matargerð og bakstri.
Vinnubrögð:
farið eftir einföldum uppskriftum og notað til þess einföld mæli- og eldhúsáhöld og sinnt viðeigandi frágangi,
Heimilisfræði 3,bls. 2, 5-20, 33
Nemendur æfa notkun ýmissa mæliáhalda og æfa sig að lesa uppskriftir.
Geti gert greinarmun á hreinu og óhreinu eldhús
Vinnuvernd
gert sér grein fyrir helstu hættum sem fylgja vinnu í eldhúsi.
Heimilisfræði 3, bls.3.
Umræður um hættur í umhverfi nemenda og hvað þau geta gert til að koma í veg fyrir slys og óhöpp.
Skyndihjálp, bruni.
Lífshættir
tjáð sig á einfaldan hátt um heilbrigða lífshætti,
Heimilisfræði 3, bls. 24-27.
Næring
valið hollan mat og útskýrt áhrif hans á líkama og líðan,
Heimilisfræði 3, bls. 24, 25, 27
Rýnt í eigið mataræði,
Hreinlæti
farið eftir einföldum leiðbeiningum um hreinlæti og þrif,
Heimilisfræði 3, bls. 3-4, 31.
Rætt um handþvott og nauðsyn hans, (nemendur venjast á að þvo sér um hendur áður en matartilbúningur hefst).
Þjálfast í að vaska upp og þurrka.
Læri um nauðsyn þess að viðhafa hreinlæti við heimilisstörfin
Kostnaður
tjáð sig á einfaldan hátt um kostnað við máltíð eða nesti.
Heimilisfræði 3, bls. 21.
Rætt um kostnað við kaffihúsaferð .
Umhverfi
sett viðfangsefni heimilisfræðinnar í einfalt samhengi við sjálfbærni,
Heimilisfræði 3, bls.28-30, 32.
Myndbönd: t.d. fræðslumyndbönd fyrir nemendur á yngsta stigi sem Sorpa og Hringrás hafa gefið út á YouTube.
Farið er yfir ýmis atriði sem nemendur eiga auðvelt með að taka upp í sínu lífi, æfa sig í flokkun matarúrgangs og alls sem til fellur við heimilishald, myndbönd og aðrir miðlar um sjálfbærni,
Neytendur
skilið einfaldar umbúðamerkingar,
Heimilisfræði 3, bls. 28-30.
Farið yfir umbúðamerkingar sem skiptast í umhverfismerki, umbúðamerki, lífræn merki og réttlætismerki.
Menning
tjáð sig á einfaldan hátt um jákvæð samskipti við borðhald og þekki þjóðlegan mat,
Heimilisfræði 3, bls. 22-23.
Umræður og fræðsla um ýmsar hátíðir og siði og þjóðlegan mat.
Verklegar æfingar tengdar borðhaldi þegar nemendur hafa bakað/eldað eitthvað sem við borðum á staðnum.
Umræður um mismunandi matarmenningu.
Kolefnisspor
gert sér grein fyrir mismunandi kolefnisspori matvæla.
Byrjar í 4. bekk.