Námslýsing: Þeir sem njóta þess að fara í gönguferðir ættu að velja þessa valgrein. Fyrsti tíminn verður kynningarfundur, þ.e. farið yfir dagskrá annarinnar Yfir önnina munum fá kynningu á útbúnaði fyrir fjallgöngur og útivist almennt, göngur verða um nærumhverfið, leikir utandyra, hjólað, útieldun og við reynum að koma fyrir eins og einni eða tveimur gistingum og jafnvel fjallganga í annarri.
Markmiðið með þessari valgrein er að nemendur:
· skilji mikilvægi góðs útbúnaðar þegar farið er í lengri göngur og göngur á fjöll
· njóti útivistar í íslenskri náttúru á öruggan og ábyrgan hátt
· beri virðingu fyrir náttúrunni og gangi vel um hana.
Námsmat: Ástundun og markmið metin í hverri göngu.
Kennslustundafjöldi: Tímarnir verða í stundatöflu einhver skipti en mikilvægt er að nemendur geti verið lengur ef þess þarf. Einhverju sinni gæti verið að helgi verði nýtt en þá sérstaklega í gistinguna. Nemendur mæta þá að öllum líkindum ekki í alla tíma í stundatöflu og verður reynt að fara eftir fyrirfram ákveðinni dagskrá. Veður og vindar geta líka sett strik í reikninginn en þá reynum við að breyta viðburðinum í eitthvað viðráðanlegra.
Kennari: Ásta Sigvaldadóttir