Námslýsing: Í línudans munu nemendur læra skemmtilega línudansa við kántrí lög svo sem Austin, Footloose og fleiri. Nemendur munu fá tækifæri til þess að hreyfa sig í takt við tónlistina og læra grunnskref línudans, svo sem Grapewine, Jazz Box og Spliss Splass (ásamt fleiri sporum). Tímanum verður skipt upp þannig að fyrst verður farið yfir þá dansa sem við erum búin að læra og seinni hluta tímans verður lærður nýr dans, möguleiki á Just Dance í lokin ef tími gefst.
Kennslustundafjöldi: Verður 1x í viku, 80 mínútur í senn í eina önn.
Kennari: Sigfús Haukur Sigfússon.