Námslýsing: Í söngleikjavali kynnast nemendur vinsælum söngleikjamyndum og læra skemmtileg atriði við þekkt lög úr þessum myndum. Einnig fá nemendur tækifæri til að vinna saman að eigin atriðum. Tímarnir innihalda einnig skemmtilega leiki, auka hreyfifærni og styrkja hópanda. Lögð verður áhersla á sköpun, túlkun, sjálfsöryggi, samvinnu, hreyfingu og skemmtun í hvetjandi umhverfi. Öll geta verið með, með eða án reynslu í dansi!
Kennslustundafjöldi: verður 1x í viku, 80 mínútur í senn í eina önn.
Kennari: Þórunn Ylfa Brynjólfsdóttir.