Námslýsing: Frakkland, frönsk menning og undirstaða í frönsku tungumáli eru aðalviðfangsefni áfangans. Nemendur fræðast um sögu, menningu, daglegt líf og helstu kennileiti Parísar og annarra staða í Frakklandi sem og grunnorðaforða tungumálsins. Æfð eru grunnhugtök á frönsku, svo sem sagnir, tölur, nafnorð o.s.frv. Horft verður á franska kvikmynd og frönsk matargerð kynnt. Nemendur afla sér þekkingar og hagnýtra upplýsinga og vinna verkefni um kennileiti Parísar.
Kennslustundafjöldi: verður 1x í viku, 80 mínútur í senn í eina önn.
Kennari: Björg Þorsteinsdóttir.