Námslýsing: Nemendur fá þjálfun í að baka brauð og kökur. Þeir vinna sjálfstætt eftir að kennari hefur farið yfir vinnuferlið. Mikið er lagt upp úr góðu vinnulagi og að frágangur sé til fyrirmyndar.
● Áhersla er lögð á mismunandi baksturaðferðir, s.s. ger- og lyftiduft bakstur þar sem bakaðar verða bollur og múffur, sætabrauð úr þeyttu, hrærðu og hnoðuðu deigi.
● Nemendur vinna sjálfstætt eftir uppskriftum.
● Áhersla er lögð á hreinlæti, góða umgengni í verki og góðan frágang.
● Lögð er áhersla á að efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda.
● Allir tímar eru verklegir.
Námsmat: Námsmat byggir á símati sem gert er í lok hverrar kennslustundar.
Kennslustundafjöldi: Verður 1x í viku, 80 mínútur í senn í eina önn.
Kennari: Bjargey Aðalsteinsdóttir.