Námslýsing: Byrjað er á grunninum á efnafræði, farið í lotukerfið, byggingu frumeinda, fjallað um sameindir og efnatengi. Ýmsar verklegar æfingar (tilraunar) unnar í tengslum við umfjöllunarefnið hverju sinni. Í verkefninu Vísindavöku er unnið eftir grunnhugmyndum leitarnáms (inquiry based learning) sem er kennsluaðferð sem leitast við að fylgja ferli vísinda með því að spyrja spurninga, afla upplýsinga, greina þær og gera þeim skil. Í byrjun framkvæmum við tilraunir sem tengjast eðlis- og efnafræði, öðlumst færni í vísindalegum vinnubrögðum þeim tengdum og skráum niðurstöður í skýrslum. Seinni hluta námskeiðsins hanna nemendur sína eigin tilraun út frá rannsóknarspurningu, fylgja ferli vísinda og bjóða yngri nemendum á vísindasýningu og kynna niðurstöður sínar. Með því að fylgja ferli vísindanna öðlumst við innsýn í hug vísindafólks og getum þannig gert okkur grein fyrir því hversu ótrúlega spennandi, krefjandi og áhugaverð vísindin eru. Þau útheimta vissulega þolinmæði og þrautseigju, en með réttu aðferðunum getur eitthvað ótrúlegt gerst. Hægt er að skoða betur hugmyndafræði Vísindavöku á þessari slóð: http://visindavaka.natturutorg.is
Markmið: Að nemendur kynnist grunnþáttum efnafræðinnar, æfi sig í að vinna eftir ferli vísinda, læri orðið „breyta“ og geti beitt því, geti útskýrt athugun á vísindalegan hátt fyrir öðrum og þjálfist í að koma fram og kynna fyrir öðrum
Kennsluaðferðir: Áhersla er lögð á verklegar æfingar.
Námsgögn: Lesefni sem kennari tekur saman og dreifir til nemenda, heimildamyndir og ýmis verkefni frá kennara. Lesefni sem nemendur finna, er tengist þeirra áhugasviði og rannsóknarspurningum.
Námsmat: Skýrslur og kynningar á niðurstöðum verða metnar út frá völdum hæfniviðmiðum aðalnámskrár, sem og virkni og þátttaka í tímum.
Kennslustundafjöldi: verður 1x í viku, 80 mínútur í senn í eina önn.
Kennari: Laufey Alda Sigvaldadóttir .