Námslýsing: Í STEM valfaginu fá nemendur tækifæri til að kynnast STEM bæði sem fræðigrein og aðferðafræði. STEM stendur fyrir science (vísindi), technology (tækni), engineering (verkfræði) og math (stærðfræði). Kennslan byggir á hópavinnu þar sem nemendur nýta endurunnið efni til að leysa verkefni og takast á við raunverulegar áskoranir. Lögð er áhersla á að efla sköpunarkraft nemenda, þróa lausnamiðaða hugsun og hvetja þá til að nýta ólíka styrkleika hvers annars innan hópsins. Nemendur fá einnig tækifæri til að kynnast og prófa ýmsan tæknibúnað, meðal annars MakeyMakey og vélmenni.
Námsmat: Símat.
Kennslustundir: 80 mín. á viku í eina önn.
Kennari: Birna Friðgeirsdóttir.