Námslýsing: Leiklistarval er skemmtilegt og skapandi val fyrir nemendur sem vilja kynnast leiklistinni. Þar fá nemendur tækifæri til að taka þátt í skemmtilegum leikjum, leiklistaræfingum, senuvinnu, hreyfingu og spuna. Áhersla er lögð á samvinnu, sjálfstraust og tjáningu í öruggu og jákvæðu umhverfi. Markmiðið er að efla hugmyndaflug og leikgleði – og umfram allt að hafa ótrúlega gaman.
Brynja Helga textílkennari ásamt öðrum kennurum kemur og kennir nemendum grunnatriði í búninga- og sviðshönnun.
Möguleiki á að setja upp leiksýningu.
Kennslustundafjöldi: Kennt einu sinni í viku, 80 mín. í senn og/eða eftir þörfum í eina önn.
Kennari: Þórunn Ylfa Brynjólfsdóttir ásamt fleirum kennurum.