Starfstími nemenda er frá kl 8 eða 9 á morgnanna til 14 eða 15 síðdegis. Nemendur geta haft áhrif á stundatöfluna sína, ekki síst með því að stunda faglegt frístundastarf utan skóla og fá það metið sem valgrein.
Alla morgna er morgunstund (dögun uppvakninga eins og nemendur kalla hana) þar sem farið er yfir verkefni dagsins, gerðar léttar morgunæfingar og unnið er í því að þétta hópinn og skapa öruggt og gott skólaumhverfi. Í kjölfarið taka við vinnustundir og teymisfundir með kennurum þar sem unnið er að þeim verkefnum sem liggja fyrir hverju sinni. Í hverri viku halda nemendur kynningarfund á verkefnum vikunnar.
Aðra hverja viku tekur umsjónarkennari viðtal við hvern nemenda og á sex vikna fresti eru nemendastýrð viðtöl. Nemendur vinna í teymum sem taka breytingum yfir skólaárið. Nemendum er ekki raðað í bekki.
Lagt er upp með að nemendur hafi lýðræðislega aðkomu að gerð stundaskrár Ásgarðsskóla. Skóladagarnir okkar eru alltaf óskertir og eru fleiri en vaninn er í íslenskum skólum. Nemendur ráðstafa sjálfir sínum vetrarfríum í samráði við sínar fjölskyldur.
Eins og sjá má í skólanámskrá og námsvísi er ítarlega haldið utan um nemendastundir og útfærslu á námsgreinum út frá viðmiðunarstundaskrá og valgreinum. Dagurinn hefst klukkan 08.00 eða 09:00 en lýkur að kl. 14:00 eða 15:15. Nemendur geta haft áhrif á stundatöfluna.
Kennarar í Ásgarðsskóla hafa einsett sér að skara fram úr við útfærslu persónumiðaðs náms.
Lagt er út frá sama þema fyrir alla en viðfangsefnin eru mismunandi eftir áhuga og/eða getu nemenda
Nemendur gera áætlanir í samvinnu við kennara og foreldra með markmiðum fyrir hverja námslotu eða tímabil
Námsaðferðir eru í samhengi við markmið hvers og eins nemanda sem smám saman fara að þekkja eigin námsstíl
Hópaskipting er fjölbreytt og áhersla lögð á samvinnu jafnt sem sjálfstæð vinnubrögð
Námsmat er að mestu leyti einstaklingsmiðað og nemendur er virkir þátttakendur í því
Fylgst er vandlega með framförum hvers og eins og brugðist við ef framfarir teljast óeðlilegar.
Námsvísir skólans er einn af mikilvægustu vegvísum skólans. Námsvísirinn segir til um hvaða nám er fyrirhugað að eigi sér stað á skólaárinu og markar nauðsynlegar vörður til þess að hægt sé að staldra við, meta stöðu nemandans og halda svo áfram í næstu lotu. Loturnar markast af grunnþáttum menntunnar og skiptast í sex meginlotur yfir skólaárið. Hverri lotu lýkur með lokaniðurstöðu og námsmati þar sem hægt er að staldara við og endurhanna námsferlið sem framundan er ef nauðsyn krefur.
Askurinn er námsumsjónarkerfi skólans þar sem þemaverkefnin og námið allt er útfært í smærri einingum á stjórnborði hvers og eins. Þar sjá nemendur og fullorðna fólkið þeirra hvaða námsmarkmiðum er verið að vinna að, hver viðmið um árangur eru og þar skila nemendur öllum verkefnum sínum.
Í Askinum er hægt að sjá hvernær verkefnaskil eru fyrirhuguð og þar safnast saman öll verkefni nemandans. Hér sjá nemendur öll fyrirmæli og allt námsmat fer fram hér. Sjá nánari upplýsingar á upplýsingasíðu Asksins.
Öllu skólasamfélagi Ásgarðsskóla er annt um að námsmat sé skýrt, gagnsætt og að allir í skólanum, nemendur, kennarar og fullorðna fólkið þekki vel þau viðmið sem liggja að baki námsmatinu.
Námsmatsstefna skólans á að lýsa vel hvernig námsmati er háttað, hvernig einkunnagjöf birtist og hvernig námsmat á að stuðla að kerfisbundnum framförum hvers og eins nemanda. Námsmatsstefnan er endurskoðuð reglulega af skólasamfélaginu öllu. Allar ábendingar eru vel þegnar hvenær sem er.