Sýn og stefna

Áherslur skólans 

Ásgarðsskóli er skólasamfélag sem vinnur að því með nemendum sínum og fjölskyldum þeirra að þeir verði færir um að vera virkir þegnar í nútímasamfélagi og geti lagt sitt af mörkum við að bæta heiminn. 

Í Ásgarðsskóla gera allir alltaf sitt besta. Við sýnum hvert öðru virðingu og látum til okkar taka við að gera umhverfi okkar og heiminn allan betri. 

Starfsfólk Ásgarðs hefur sett sér það markmið að bjóða upp á framúrskarandi skólastarf og tryggja meðal annars að fjölbreyttir kennsluhættir og námsmat birtist með skýrum hætti í skólastarfinu. Kennarar hafa sett sér viðmið um hlutfall mismunandi kennsluhátta og námsmats til að mæta sem best fjölbreyttum þörfum allra nemenda.



Sýn og stefna

Stefna skólans og gildi 

Ásgarðsskóli er skólasamfélag sem vinnur að því með nemendum sínum og fjölskyldum þeirra að þeir verði færir um að vera virkir þegnar í nútímasamfélagi og geti lagt sitt af mörkum við að bæta heiminn. 

Í Ásgarðsskóla gera allir alltaf sitt besta. Við sýnum hvert öðru virðingu og látum til okkar taka við að gera umhverfi okkar og heiminn allan betri. 

Stefna skólans er að nemendur og starfsfólk skólans: 

Í Ásgarðsskóla er sérstaklega lagt upp með að skólasamfélagið líti á heiminn sem eina heild, beri virðingu fyrir íbúum alheimsþorpsins, menningu allra, stjórnmálum,  tungumálum og listum.



Kennslufræðileg stefna

Starfsfólk Ásgarðs hefur sett sér það markmið að bjóða upp á framúrskarandi skólastarf og tryggja meðal annars að fjölbreyttir kennsluhættir og námsmat birtist með skýrum hætti í skólastarfinu. Kennarar hafa sett sér viðmið um hlutfall mismunandi kennsluhátta og námsmats til að mæta sem best fjölbreyttum þörfum nemenda.

Kennsluhættir við Ásgarð  teljast fjölbreyttir. Notast er við margvíslegar kennsluaðferðir og kallað er eftir virkni nemenda a.m.k. 90% af námstímanum. Bein kennsla kennara með fyrirlestrum og útskýringum ásamt þjálfunaræfingum í verkefnabókum er að jafnaði ekki meira en um 10% náms- og kennslutíma nemenda. Kennsluaðferðir sem stuðla að sjálfstæði, samræðu, samvinnu, gagnrýnni hugsun og skapandi vinnubrögðum eru í öndvegi. 

Í Ásgarðsskóla hefur verið ákveðið að byggja á aðferðum IMYC námskrárinnar þar sem námsferlið byggir á samþættingu námsgreina og eftirfarandi rannsóknarferli. Námið grundvallast á þemum sem skipulögð eru í námsvísi skólans. Á hverju ári eru sex þemu sem allir árgangar fara í gegnum saman.

Ferlið hefst á upphafi eða kveikju, þá er unnið með forþekkingu eða hugtök fest í sessi. Þegar nemendur eru tilbúnir og kunna þau vinnubrögð sem til er ætlast eða þekkja þann orðaforða sem fyrirhugað er að vinna mðe þá hefst nemendavinnan. Nemendur vinna saman eða í sitthvoru lagi út frá námsmarkmiðum og viðmiðum um árangur, skrá hjá sér og undirbúa. Kennarar styðja við og stuðla að því að nám eigi sér stað og efla nemendur í að hefja að máta sig við þau viðmið um árangur sem sett hafa verið. Nánast öll verkefni enda á einhverskonar kynningum, útgáfu eða lokaniðurstöðu. 

Í Ásgarðsskóla fylgjum við námsferli sem lagt er upp með í Fieldworkeducation námskránni, námsmat er á grunni námsmatsstefnu skólans.

Persónumiðað nám 


Kennarar í Ásgarðsskóla hafa einsett sér að skara fram úr við útfærslu persónumiðaðs náms. 

Kennarar styðjast við matstæki GGÓ um starfshætti í anda hugmynda um einstaklingsmiðað nám, lýðræðislegt og nemendamiðað skólastarf og lærdómssamfélag. Stefnan er að mælast ávallt á 5. stigi. Gæðaviðmið Nýsköpunarskólans eru jafnframt mælikvarði á gæða kennslu við skólann. 

(Byggt á Matstæki GGÓ frá 2018; Reykjavíkurborg, kennara og nemendastoð, birtist meðal annars hér)



Uppeldisfræðileg stefna

Hin óyggjandi vitneskja um að nám fari stöðugt fram er í senn uppeldisfræðileg og kennslufræðileg stefna Ásgarðs. Vaxtarhugarfar er ríkjandi á öllum stigum í starfsemi Ásgarðs. Það er sérstakt markmið að nemendur og kennarar tileinki sér vaxtarhugarfar og hafi trú á því að æfingin skapi meistarann og að kennarar og foreldrar tileinki sér að styðja við og horfa á námsferlið sem sigur í sjálfu sér. Mistök eru mikilvæg til að læra af og við hvetjum hvert annað til að taka áhættu. Ásgarður er öruggur staður til að gera tilraunir, viðra skoðanir sínar og vaxa. Við þetta styðja fjölbreyttir kennsluhættir þar sem gert er ráð fyrir sjálfstæði og samvinnu í vinnubrögðum.

Í Ásgarðsskóla er áhersla á vaxtarhugarfar með megináherslu á stuðning við jákvæða hegðun. Misbrest á hegðun er leitast við að leiðrétta með leiðum sem einkennast af umhyggju, virðingu, reisn og festu.



Skóli margbreytileikans

Í Ásgarðsskóla eru allir jafnir og nemendur hvorki aðgreindir vegna aldurs, kyns, uppruna eða með nokkrum öðrum hætti. Allir nemendur skólans hafa þarfir og tekið er tillit til þeirra - engar þarfir eru “sér” þarfir - eða allar þarfir eru sérþarfir. Námið er sniðið að þörfum hvers og eins. 

Nemendur vinna í teymum eða sjálfstætt en er ekki er skipt í bekki. Nemendur gera sínar eigin námsáætlanir í samvinnu og samstarfi við kennara sína og foreldra. Viðfangsefnin stjórnast af grunnþáttum og þemum en nánari útfærslur eru alltaf í höndum nemenda.

Það er lykilatriði að allir nemendur bæti sig sem námsmenn og verði í hverju skrefi hæfari til að  bera vaxandi ábyrgð á námi sínu og smám saman skipulagt það af eigin rammleik. Með hverju skrefi nálgast nemandinn hæfni til að hefja nám í framhaldsskóla eða takast á við aðrar áskoranir lífsins. Ásgarður er öruggt umhverfi sem gerir nemendum kleift að æfa sig sem sjálfstæðir námsmenn og fá að taka örugg skref út í lífið með viðfangsefnum sem henta hverjum og einum.