Það er alltaf gaman á íþróttadeginum í Hvassó en í ár var hann enn skemmtilegri en áður þar sem stöðvarnar voru fleiri en venjulega. Þar var boðið upp á pógó, snú snú, sipp, teygjutvist, limbó, skinnukast, skotbolta, gryfjubolta, körfubolta, baunapokakast, krokket, eltingaleik og ein af nýju stöðvunum var stígvélakaststöðin. Bæði nemendur og starfsmenn skólans gátu tekið þátt. Öll köst þátttakenda voru skráð og urðu úrslitin þessi: Í stúlknaflokki kastaði Vera í 6. bekk lengst, 15,75 metra og í drengjaflokki kastaði Ari í 6. bekk lengst, 17,94 metra. Það verður gaman að sjá hvort þessi met halda á næsta ári.
Flestallir skemmtu sér mjög vel á íþróttadeginum þó veðrið hefði alveg alveg mátt vera betra.