Fjórði bekkur fór í heimsókn á Reykjanesið í gulri veðurviðvörun. Til stóð að fara í fjöruferð og rannsaka svo fenginn þaðan á Þekkingarsetrinu í Sandgerði. En þegar það eru yfir 20 metrar á sekúndu úti er fjöruferð á Garðskaga kannski ekki besta hugmyndin og því voru góð ráð dýr þar sem heimsókn og rúta var bókuð á þessum degi.
Þá hitti svo vel á að foreldri barns í bekknum er safnstjóri á Byggðasafni Reykjanesbæjar og hún var svo elskuleg að hliðra til allri sinni dagskrá til að taka á móti okkur þennan tíma sem við áttum að vera í fjörunni. Reyndist það hin frábærasta heimsókn, þar sem við fengum að heyra um draugaskip og kynnast safninu og sýningunum sem þar eru í gangi. Við krakkarnir í fjórða bekk getum því mælt 100% með heimsókn í Duushús í Keflavík, þetta var frábær upplifun!
Svo héldum við í Þekkingarsetrið þar sem við lærðum um strand franska rannsóknarskipsins Pourquoi-Pas, sem fórst rétt fyrir utan strendur Íslands í byrjun 20 aldarinnar. Við fengum líka að skoða krabba og krossfiska ásamt því að skoða önnur dýr safnins, bæði lifandi og líka uppstoppuð, m.a. risastóran uppstoppaðan rostung!
Góður dagur.