Þetta verkefni er gott hópefli, nemendur fá tækifæri til að kynnast hver öðrum án þess að þurfa að vera of persónulegir.
Nemendum er raðað í 6-8 manna hópa (ekki minni því þá er leikurinn of auðveldur).
Hver hópur:
Þarf að sjá á töflu/skjá með leiðbeiningunum sem gefnar eru hér fyrir neðan.
Finnur sér stað og stendur í hring þannig að allir sjái alla hina.
Fær bolta
Fylgir leiðbeiningunum. Ef einhver strandar í leiknum er mikilvægt að hinir í hópnum hjálpi honum "að muna".
Í þessum leik eru farnar sex umferðir. Sá sem er með boltann talar og kastar svo boltanum á einhvern annan til að láta hann gera sama.
Í hverri umferð eiga allir að fá boltann einu sinni og gera það sem leiðbeiningarnar biðja um.
Bannað er að láta boltann ganga í hring eða alltaf í sömu röð milli hópfélaga:
Umferð: Segja nafn sitt og nefna einn styrkleika og kasta til næsta einstaklings sem gerir slíkt hið sama.
Umferð: Kasta til einstaklings og segja nafn hans og styrkleika.
Umferð: Segja nafn, styrkleika og uppáhalds lit og kasta til næsta einstaklings sem gerir slíkt hið sama.
Umferð: Kasta til einstaklings og segja nafn hans, styrkleika og uppáhalds lit, hér reynir á einbeitingu hvers og eins sem og minni.
Umferð: Segja nafn sitt, styrkleika, uppáhalds lit og uppáhaldsdýr.
Umferð: Kasta til einstaklings og segja nafn hans, styrkleika og uppáhalds lit og dýr
Hugmyndin að þessu verkefni kemur af námskeiði hjá Hugarfrelsi.