Velkomin á vefinn okkar. Hér finnur þú umfjöllun um hvernig hægt er að nota lausnamiðaða nálgun til að styrkja sjálfsmyndina, takast betur á við það sem ekki gengur nógu vel og læra að leysa mál fljótt og örugglega.
Vefurinn er ætlaður kennurum sem vinna með unglingum. Við mælum með að kennarar nýti efnið í samráði við náms- og starfsráðgjafa. Þeir eru sérmenntaðir í ráðgjöf, geta leiðbeint kennurum og stutt við nemendur ef í ljós koma mál sem vinna þarf með á einstaklingsmiðaðri hátt en mögulegt er í bekkjarkennslunni. Ef ekki er starfandi náms- og starfsráðgjafi í skólanum geta skólafélagsráðgjafar, stjórnendur eða aðrir fagmenn veitt mikilvægan stuðning í vinnunni.
Hér finnið þið verkefnablöð, lýsingar á kennslustundum og ýmsan fróðleik um lausnamiðaða nálgun. Aðferðin hentar sem viðhorf og tungumál í daglegum samskiptum en er upphaflega þróuð til að nota í ráðgjöf til einstaklinga sem vilja losna við vandamál af einhverju tagi. Á vefnum eru verkefni sem hugsuð eru til að þjálfa unglinga í lausnamiðaðri hugsun með það fyrir augum að koma í veg fyrir og fækka alvarlegum vandamálum í lífi þeirra.
Þar sem þjálfun í lausnamiðaðri nálgun getur orðið mjög persónuleg fyrir nemendur er mjög mikilvægt að huga að reglum um trúnað og velferð barna. Gott er að kennari upplýsi um þær reglur sem gilda um tilkynningaskyldu kennara til barnaverndar áður en verkefnið fer af stað. Ef nemandi segir frá því að hann sjálfur eða önnur börn séu beitt andlegu, líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi, misnotkun eða vanrækslu þá verði að ræða málið og leita hjálpar. Starfsmönnum skóla er skylt að tilkynna grun af þessu tagi til nemendaverndarráðs skólans sem metur þörf á tilkynningu til barnaverndar.
Kennari getur notað tungumál lausnamiðaðrar nálgunar til að sýna nemendum virka hlustun og leiðbeina þeim út úr neikvæðum aðstæðum á þann hátt að barnið upplifir að það stjórni sér sjálft. Á þessari síðu eru góð ráð sem klippa má niður og plasta til að geyma í vasanum eða á kennarapúltinu sínu og grípa til á meðan aðferðin er ekki orðin fullkomlega sjálfkrafa.
Mundu að æfingin skapar meistarann!
Fyrirmyndin að þessari útfærslu er á vefnum uppbygging.is: Góð ráð - Spjaldakippa
Daydream designs. [E.d.]. Orange Simple English Understanding Values Individual and Group Activity Worksheet [skapalón að verkefnablöðum]. Canva. https://www.canva.com/design/DAF07IZEZPE/ect7nMYQVt2ZHyIr-QyACg/edit?utm_content=DAF07IZEZPE&utm_campaign=designshare&utm_medium=link2&utm_source=sharebutton
Geldard, K., Geldard, D. og Yin Foo, R. (2018). Counselling children. A practical introduction (5. útgáfa). Sage.
Geldard, K., Geldard D. og Yin Foo, R. (2019). Counselling adolescents. The proactive approach for young people (5. útgáfa). Sage.
Miller, K. (2019, 22. október). 7 solution focused therapy techniques and worksheets (+PDF). Positive psychology.com. https://positivepsychology.com/solution-focused-therapy-techniques-worksheets/
Sklare, G. B. (2014). Brief counseling that works. A solution-focused therapy approach for school counselors and other mental health professionals. Corwin og American school counselors association.
Sklare, G. B., Sabella, R. A. og Petrosko, J. M. (2003). A Preliminary Study of the Effects of Group Solution-Focused Guided Imagery on Recurring Individual Problems. The journal for specialists in group work, 28:4, 370-381. https://www.researchgate.net/profile/Russell-Sabella/publication/247784515_A_Preliminary_Study_of_the_Effects_of_Group_Solution-Focused_Guided_Imagery_on_Recurring_Individual_Problems/links/54f4c5290cf2ba615063f591/A-Preliminary-Study-of-the-Effects-of-Group-Solution-Focused-Guided-Imagery-on-Recurring-Individual-Problems.pdf?origin=publication_detail
Solution focused online academy. (2019, 7. mars). Classroom solutions [myndband]. Youtube. https://youtu.be/7AOG_CM-OC8?si=i2MtIMuJJI5CZj0q
Starfsmenn Álftanesskóla. [E.d.]. Góð ráð. Uppeldi til ábyrgðar [pdf skjal]. Uppbygging sjálfsaga, uppeldi til ábyrgðar. https://uppbygging.is/wp-content/uploads/2016/07/Góð-ráð-Spjaldakippa.pdf