Þróunarverkefnið Læsi fyrir lífið miðar að því að efla læsiskennslu á mið- og unglingastigi með fjölbreyttum aðferðum. Verkefnið byggir á læsisstefnunni Læsi er lykillinn. Í Læsi fyrir lífið eru samvirkar læsiskennsluaðferðir og samþætt vinna með orðaforða, lesskilning, lesfimi, ritun, samræðu, tjáningu og hlustun í skólastarfi í brennidepli. Markmiðið er að efla læsisfærni nemenda ár frá ári og að læsi fléttist inn í allt skólastarf þvert á námsgreinar. Lögð er áhersla á fjölbreyttar og hagnýtar aðferðir sem rannsóknir hafa sýnt að séu árangursríkar í að efla læsi. Í verkefninu er lögð áhersla á að mæta þörfum nemenda þar sem þeir eru staddir námslega og stuðla að auknum áhuga, virkni og árangri þeirra. Í því felst að kennari skipuleggur námið á þann hátt að einstaklingsþörfum sé mætt innan bekkjarins með fjölbreyttu námsefni, vinnubrögðum og námsleiðum.
Á þessari vefsíðu má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um læsi á mið- og unglingastigi og leiðir til að efla það.
Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri hefur staðið að þróun kennsluaðferðarinnar Læsi fyrir lífið í samvinnu við skóla víðs vegar um land og býður upp á stuðning við kennara og skóla sem vilja taka þátt í og innleiða Læsi fyrir lífið í skólastarfi. Allar nánari upplýsingar um er að finna á vefsíðu MSHA - www.msha.is