Nefndir


Stjórn og nefndir samkvæmt aðalfundi Blæs 2022

Stjórn Blæs:

Formaður: Margrét Linda Erlingsdóttir polly8670@gmail.com 

Varaformaður: Elísabet Halla Konráðsdóttir elisabethalla1234@gmail.com

Meðstjórnandi: Sunna Júlía Þórðardóttir sunnajulia@gmail.com

Ritari: Guðbjörg Friðjónsdóttir guggaf@internet.is  

Gjaldkeri: Sigurborg Hákonardóttir sigurborg@va.is 

Varamenn: Anna Bergljót Sigurðardóttir marbakki7@gmail.com

   Theodór Elvar Haraldsson

Stjórn Dalahallar:

Guðröður Hákonarson

Guðbjörg Friðjónsdóttir

Rósa Dögg Þórsdóttir

Anna Bergljót Sigurðardóttir

Guðbjartur Hjálmarsson

Nefndir Blæs 2022

Helstu hlutverk einstakra nefnda

Nefndir velja sér formann sem sér um að kalla saman fundi og gera grein fyrir starfi nefnda á aðalfundi félagsins. Allar nefndir vinna með stjórn Blæs og hafa ekki sjálfstæðan fjárhag.


Samkvæmt lögum félagsins eru eftirtaldar nefndir lögboðnar:

Fimm fulltrúar í stjórn auk tveggja varamanna, tveir skoðunarmenn reikninga, fimm fulltrúar í æskulýðsnefnd, fimm fulltrúar í mótanefnd, fimm fulltrúar í firmanefnd (skal gjaldkeri félagsins vera formaður hennar), þrír fulltrúar í reiðveganefnd og fimm fulltrúar í kaffinefnd.


Heimilt er á aðalfundi að kjósa nefndir og stofna deildir innan félagsins. Einnig getur stjórn félagsins skipað nefndir til ákveðinna verkefna. Deildir og nefndir eru bundnar af lögum félagsins. Deildir og nefndir sem stofnaðar eru á aðalfundi verða ekki lagðar niður nema með ákvörðun aðalfundar.


Stjórn Blæs:

5 aðalmenn og 2 varamenn: Formaður, gjaldkeri, ritari, varaformaður, meðstjórnandi.

Stjórn sér um rekstur félagsins, starfar með nefndum, hefur ábyrgð á fjárreiðum og fer með ákvörðunarvald í málum félagsins og er einnig tengiliður Blæs við LH. Sjá nánar um hlutverk í lögum félagsins.


Skoðunarmenn  reikninga  2 menn

Endurskoða reikninga félagsins


Kaffinefnd 5 menn

Sér um að útvega og selja veitingar þegar þess er óskað, yfirleitt í tengslum við mót á vegum félagsins.


Reiðveganefnd 3 menn

Sér um viðhald og lagningu reiðvega


Húsnefnd 3 menn

Hefur umsjón með og aðstoðar við tæmingu á gamla félagshúsinu. Þegar félagshúsið hefur verið tæmt leggst húsnefnd af enda búið að selja húseignina.


Útreiðanefnd 4 menn

Sér um fasta útreiðartúra, auk þess kvennareið og herrareið. Útreiðanefnd er ekki bundin í lög félagsins en stjórn er heimilt að skipa í hana.


Skemmtinefnd 5 menn

Skipuleggur fjölskylduskemmtun og/eða skemmtikvöld árlega. Skemmtinefnd er ekki bundin í lög félagsins en stjórn er heimilt að skipa í hana.


Mótanefnd 5 menn

Sér um mótahald á vegum félagsins og í samstarfi við önnur félög þegar það á við, þó ekki firmamót. 

Æskulýðsnefnd 5 menn

Skipuleggur æskulýðsstarf félagsins, sér um æskulýðsdaga og hestakrakkastarf, stendur fyrir fjáröflunum. Sér um samstarf við æskulýðsnefnd LH.

Firmanefnd. 5 manns- gjaldkeri Blæs er formaður nefndarinnar

Sér um að skipuleggja og halda firmamót og safna styrkjum í tengslum við það.


Vallarnefnd 3 menn

Sér um viðhald reiðvallarins og gætir þess að völlur sé í góðu lagi fyrir mót. Hefur umsjón með girðingum félagsins á svæðinu og sér til þess að þær séu hestheldar. Vallarnefnd leggst af og verkefni hennar falla undir mótanefnd eftir næsta aðalfund nema skipað verði í hana sérstaklega.Vallarnefnd er ekki bundin í lög félagsins en stjórn er heimilt að skipa í hana.