Barnakór Reykholtsskóla er fyrir nemendur í 1. - 4. bekk Reykholtsskóla og elstu nemendur leikskólans Álfaborgar.
Kórinn skiptist í tvær deildir, eldri og yngri. Yngri deild nær frá leikskóla upp í 2. bekk og eldri deild er fyrir 3. og 4. bekk.
Æfingar fara fram í tónmenntastofu (stofu 7) á mánudögum.
Yngri deild kórsins æfir kl. 13:45-14:20.
Eldri deild kórsins æfir kl. 14:20-15:00.
Kórstjóri er Unnur Malín Sigurðardóttir, undirleikari er Karl Hallgrímsson.
Hér á síðunni verða birtar fréttir af starfinu og textar að lögum sem við erum að syngja og ef til vill myndir eða annað efni.
Kórnum hefur verið boðið að syngja á 100 ára afmæli Reykholts miðvikudaginn 20. maí næstkomandi. Þá verða söguskilti afhjúpuð í Reykholti og svo farin söguganga sem endar í Aratungu, þar sem boðið verður upp á veitingar. Kórinn (bæði yngri og eldri deild) opnar athöfnina með því að syngja tvö lög; "Lífið í lit" og "Um gróna jörð og gráan sand". Viðburðurinn hefst kl. 16 og allir eru velkomnir.
Sex söngvarar úr röðum kórsins sungu tvö lög á tónleikum Tvennra tíma í Félagsheimilinu á Flúðum. Stóðu þau sig öll mjög vel og hlutu að mikið klapp úr salnum.
Tvennir tímar, kór eldri borgara í Uppsveitum hefur boðið eldri deild kórsins (3. og 4. bekk) að syngja með á vortónleikum þeirra. Tónleikarnir verða haldnir í Félagsheimilinu á Flúðum sunnudaginn 26. apríl kl. 14.
Við erum mjög þakklát og spennt fyrir þessu tækifæri að koma svona opinberlega fram á tónleikum og væntum þess að gera góða lukku.
Kórinn syngur þrjú lög, tvö þeirra syngjum við ein: Samferða, og Að vera í kór, og eitt lag syngjum við með Tvennum tímum: Maístjörnuna.
Tvennir tímar hefja tónleikana, svo verður gert veitingahlé, en strax að því loknu stígur Barnakór Reykholtsskóla á svið, og syngur sín þrjú lög - það síðasta með Tvennum tímum.
Börnin þurfa að mæta tímanlega svo hægt sé að hita upp, renna lögunum í gegn og æfa stöður og hneigingar.
Mig langar að biðja um að börnin komi klædd þannig: í litríkum bolum/skyrtum/blússum, og svörtu að neðan - líka svörtum skóm, sé þess nokkur kostur.
Vinsamlegast staðfestið þátttöku barnsins ykkar.
Fyrsta æfing vetrarins verður 15. september 2025.