Unnur Malín Sigurðardóttir
Vaknað' um morguninn
opnaði ísskápinn
gaufmyglað grænmeti
lá þar og á mig starði
Þarf að fylla á birgðirnar
bruna því í búðina
til Oddnýjar og Bjarna
þar fæ ég allt sem mig vantar:
Kaffi og mjólk
spjalla við fólk
í Bjarnabúð á Brautarhóli
Fjármála- og félagsmiðstöð
bensínafgreiðsla, biðröð
strætisvagnastoppistöð
ég fer inn úrill en út glöð.
Mér finnst það svalt
að það fáist allt
í Bjarnabúð á Brautarhóli
Er það ekki svalt
að það fáist næstum allt
í Bjarnabúð á Brautarhóli.