Nú er sumar,
gleðjist gumar,
gaman er í dag.
Brosir veröld víða,
veðurlagsins blíða
;; eykur yndishag ;;
Látum spretta
spori létta
spræka fáka nú.
Eftir sitji engi,
örvar víf og drengi
;; sumarskemmtun sú. ;;
Tíminn líður
tíminn býður
sælan sólskinsdag.
Yndi er út' á grundum
yndi heim þá skundum
;; seint um sólarlag. ;;