1.
:,: Sofðu rótt bráðum syrtir af nótt.
Hér gengu þrír ganglúnir um veginn. :,:
Blindur var þar einn,
en annar haltur er,
og þögull sem steinninn hinn þriðji.
2.
:,: Sofðu rótt bráðum syrtir af nótt.
Þrjú leit ég himintungl á himni. :,:a
Eitt var stjarna hvít,
annað stjarna rauð,
hið þriðja var helbleikur máni.
3.
:,: Sofðu rótt bráðum syrtir af nótt.
Þrjú skip leit ég skríða inn á sundin. :,:
Eitt með seglin hvít,
annað seglin blá,
en svört voru segl á hinu þriðja.
4.
:,: Sofðu rótt bráðum syrtir af nótt.
Þrír blésu vindar á vori. :,:
Vestanvindur einn,
og sunnanvindur sæll
og þriðji var hinn napri norðangjóstur.
5.
:,: Sofðu rótt bráðum syrtir af nótt.
Á kistilinnég málaði þrjár myndir. :,:
Ein er mín trú,
önnur er mín von,
sú þriðja' er máluð mínu hjartablóði.