Það er andvökubjart
Himinn - kvöldsólarskart.
;; Finnum læk, litla laut, tínum grös, sjóðum graut. ;;
Finnum göldróttan hval
og fyndinn sel í smá dal.
;; Lækjarnið, lítinn foss, skeinusár, mömmukoss. ;;
Stingum af
í spegilsléttan fjörð.
Stingum af
smá fjölskyldu hjörð.
Senn fjúka barnaár
upp í loft, út á sjó,
verðmæt gleðitár
Elliró, elliró
Hoppum út í bláinn,
kveðjum stress og skjáinn.
;; Syngjum lag, spilum spil, þá er gott að vera til. ;;
Tínum skeljar, fjallagrös,
látum pabba blása úr nös.
;; Við grjótahól í feluleik, á hleðslu lambasteik. ;;
Stingum af
í spegilsléttan fjörð.
Stingum af.
Smá fjölskyldu hjörð
Senn fjúka barnaár
upp í loft, út á sjó
Verðmæt gleði tár
Elliró, elliró.