Jólabarnið
Magnús Pétursson / Jóhannes úr Kötlum
Sko hvernig ljósin ljóma
á litlu kertunum þínum.
Þau bera hátíð í bæinn
með björtu geislunum sínum.
Þú finnur ilminn af ýmsu,
svo ósköp fallegu og góðu.-
Og jólagjafirnar glitra
í gegnum töfrandi móðu.
Þú brosir er loginn blaktir
á bláum kertum og rauðum.
Öll þín óspillta gleði
yljar ríkum sem snauðum.
Þú flýtir þér út í fjárhús,
-þér finnst nú óþarft að hræðast.
Það grætur yndislegt ungbarn.
sem áðan var þar að fæðast.
Þess foreldrar feimin bíða,
í fátækt og miklum vanda.
-Þau bíða eftir betra skýli,
barni sínu til handa.
Þá kemur þú með þín kerti,
kveikir við jötuna lágu,
og réttir fram, hreina og hlýja,
höndina þína smáu.
Og bláeyga jólabarnið
þú berð inn í vöggu þína.
Og allir englarnir syngja,
og allar stjörnurnar skína.
Ó,guð!-Það er gaman að vera
góða barnið-og finna
allan hinn undursamlega
yndisleik jóla þinna.