Þau slógu' alltaf með orfi
og áttu hús úr torfi.
Ég dáist að þeim því úr þessum heim
öll ummerki' um þau eru horfin.
Börn náttúrunnar, börn náttúrunnar.
Ég dáist að þeim, því úr þessum heim
öll ummerki' um þau eru horfin.
Að vori sáðu í svörðinn
því þeirra var jörðin
þau dýrkaði hún, líkt og þau öll sín tún
og þau eru að 'henni orðin.
Börn náttúrunnar, börn náttúrunnar.
Ég dáist að þeim, því úr þessum heim
öll ummerki' um þau eru horfin
og þau eru að jörðu orðin,
já þau eru að henni orðin.