Kórinn æfði með Tvennum tímum í Kringlu skólans og gekk æfingin mjög vel.
Tvennir tímar, kór eldri borgara í Uppsveitum hefur boðið eldri deild kórsins (3. og 4. bekk) að syngja með á vortónleikum þeirra. Tónleikarnir verða haldnir í Félagsheimilinu á Flúðum sunnudaginn 26. apríl kl. 14.
Við erum mjög þakklát og spennt fyrir þessu tækifæri að koma svona opinberlega fram á tónleikum og væntum þess að gera góða lukku.
Kórinn syngur þrjú lög, tvö þeirra syngjum við ein: Samferða, og Að vera í kór, og eitt lag syngjum við með Tvennum tímum: Maístjörnuna.
Tvennir tímar hefja tónleikana, svo verður gert veitingahlé, en strax að því loknu stígur Barnakór Reykholtsskóla á svið, og syngur sín þrjú lög - það síðasta með Tvennum tímum.
Börnin þurfa að mæta tímanlega svo hægt sé að hita upp, renna lögunum í gegn og æfa stöður og hneigingar.
Mig langar að biðja um að börnin komi klædd þannig: í litríkum bolum/skyrtum/blússum, og svörtu að neðan - líka svörtum skóm, sé þess nokkur kostur.
Vinsamlegast staðfestið þátttöku barnsins ykkar með tölvupósti: unnur@reykholtsskoli.is
Skólasetning fór fram í dag í Reykholtsskóla. Eins og fram kom á að loka sundlauginni 11. september og því er brugðið á það ráð að þjappa sundkennslu vetrarins á fyrstu þrjár vikur skólaársins. Af þeim sökum verða engar kóræfingar fyrr en 15. september, þegar sundkennslu er lokið.
Kórinn ætlar að syngja á opnu húsi í Reykholtsskóla þann 10. apríl. Kóræfingar ganga vel, nemendur hafa lært mörg lög í vetur og gert ýmsar hrynæfingar.
Við ætlum að syngja: Simama Ka, Sokkablús, Banaha og Anímónulagið.
Fyrsta æfing vetrarins verður miðvikudaginn 28. ágúst 2024.
Frá og með þriðju viku 2025 verða æfingar á fimmtudögum.