Við erum alltaf að meta starfið og kanna hvað við getum gert betur. Þetta gerum við með öryggi og hag nemenda og starfsfólks að leiðarljósi. Við hlítum þeim verklagsreglum sem okkur eru settar. Það er okkar mat að verklag í kringum hádegismatinn, norðan Heiðar sé of áhættusamt, það séu of milkar líkur á krosssmiti ef kemur til sýkingar innan skólans. Við viljum ekki taka þá áhættu. Frá og með morgundeginum hættum við með hádegismat í skólanum það mun hafa töluverðar breytingar í för með sér, þær helstu eru það verður :
· Nemendur ljúka fyrr deginum
· Ein ávaxtastund og ein nestisstund (samloka og ávextir)
· Einar frímínútur/hreyfistund (30 mín)
· Skólabílsáætlun að morgni heldur sér en heimferð verður flýtt, sjá neðar
Við biðjumst velviðirðingar á því hvað þessi tilkynning kemur seint fram og okkur er það ljóst að þessar breytingar geta haft óþægindi í för með sér fyrir suma foreldra. Biðjumst við velvirðingar á því en okkur ber að hafa öryggi og hag nemenda og starfsfólks að leiðarsljósi - við erum að gera það með þessum breytingum.
Athugasemdir og ábendingar eru vel þegnar og sendist á skólastjóra - hilmara@gsnb.is. og svo er alltaf gott að fá hvatningu og hrós😉
Með vinsemd og virðingu
Skólastjórnendur GSnb