Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Nýting skólasafns:
nýtt skólasafn sér til gagns og ánægju,
Nemendur nota skólasafnið til að velja sér bækur fyrir heimalestur og yndislestur.
Í ákveðnum verkefnum eru bækur safnsins nýttar til heimildaöflunar.
Upplýsingaleit:
leitað að og valið viðeigandi upplýsingar og stafrænt efni,
Nemendur hafa Chromebook tölvur til afnota í skólanum og geta nýtt sér leitarvélar í verkefnavinnu.
Það er algengt að börn noti myndir sem þau finna á netinu, í skólaverkefnum eða sér og öðrum til skemmtunar. En börn skilja ekki alltaf hvaða myndir er í lagi að nota og hverjar ekki. Hjálpið nemendum ykkar að læra um réttindi og skyldur sínar þegar kemur að myndunum sem þau nota.
Verkefni um réttindi og ábyrgð þess sem skapar á vitundin.is
Greining og úrvinnsla gagna:
greint muninn á fræðilegu efni og skáldskap,
Í heimildavinnu er farið yfir áreiðanleika upplýsinga, hvaða netsíðum er hægt að treysta og hvað ber að varast.
Nemendur fá fræðslu um gæði upplýsinga. Fræðsluefnið er á mms.is og nefnist Stafræn borgaravitund.
Heimildanotkun:
þekkt að höfundarréttur gildir um fjölbreytt efni og unnið með heimildir á einfaldan hátt.
Nemendur fá fræðslu um skráningu heimilda samkvæmt kennslubókinni Heimi, handbók um heimildaritun frá mms.is, höfundur Svanhildur Kr. Sverrisdóttir. Þau þurfa að skrá heimild í bókakynningaverkefninu.
Kynningarefni:
nýtt hugbúnað við gerð einfaldra kynninga,
Nemendur vinna a.m.k. tvö glæruverkefni (Google slides) á vetri, annað er haustverkefni og nefnist Um mig, 5-7 glærur um fjölskyldu, áhugamál og fleira sem nemandi vill sýna.
Hitt er bókakynning þar sem nemandi velur bók sem nýbúið er að lesa í heimalestri eða yndislestri, segir frá söguþræði bókarinnar, aðal- og aukapersónum, höfundi bókarinnar og hvaða aðrar bækur höfundur hefur skrifað. Nemandi þarf að skrá bókina sem heimild aftast í glærusýningunni. Nemendi þarf svo að kynna bókina sína fyrir samnemendum. Þá er farið yfir framkomu og upplestur fyrir áheyrendur og hvert er hlutverk hlustenda á svona kynningu.
Ritvinnsla:
nýtt hugbúnað við uppsetningu einfaldra ritunarverkefna,
Nemendur vinna nokkur ritunarverkefni með Google Docs yfir veturinn.
Áhersla á að kunna á stillingaramboðin, s.s. að velja letur og stærð leturs, miðja, feitletra, skáletra, gera punktalista, setja inn myndir, töflur o.fl. sem nýtist í ritvinnslu.
Fingrasetning er æfð reglulega. Fingrafimi af vef mms.is er notuð ásamt erlendum síðum s.s. typing.com.
Vinnsla tölulegra gagna:
nýtt hugbúnað við framsetningu á einföldum tölulegum gögnum,
Athuga með einföld töflureikniverkefni
Ljósmyndir og kvikmyndun:
tekið ljósmyndir og stutt myndskeið,
Ljósmyndaratleikur???
Actionbound eða annað sambærilegt.
Myndvinnsla og myndsköpun:
nýtt tæki og hugbúnað við myndsköpun,
Samþættingarverkefni í samfélagsfræði, þar sem nemendur vinna gagnvirkt veggspjald sem geymir hljóðskrár með upptökum af þeirra eigin texta.
Hljóðvinnsla:
nýtt hugbúnað í einfalda hljóðvinnslu,
Samþættingarverkefni í samfélagsfræði, þar sem nemendur vinna gagnvirkt veggspjald sem geymir hljóðskrár með upptökum af þeirra eigin texta.
Netmiðlun:
nýtt hugbúnað við einfalda netmiðlun.
Nemendur útbúa vefsíðu í Google Sites þar sem þau safna saman verkefnum í ýmsum námsgreinum og útbúa vísi að námsmöppu (portfolio).
Jafnvægi í stafrænni notkun og vellíðan:
beitt góðri líkamsstöðu við notkun stafrænnar tækni og útskýrt muninn á jákvæðum og neikvæðum skjátíma og sagt frá hvernig notkun stafrænna miðla getur haft áhrif á líðan,
Við tökum öll ákvarðanir á hverjum degi um miðlana sem við notum. En skilja börnin hvað er heilbrigt miðlaval og hvað ekki? Valið snýst ekki eingöngu um skjátíma. Notið verkefnin í þessari kennsluáætlun til þess að gefa nemendum gagnleg verkfæri við val á miðlum.
Verkefni um val á miðlum á vitundin.is
Friðhelgi og öryggi:
útskýrt á einfaldan hátt hvað persónuupplýsingar eru og hverju má og má ekki deila í stafrænu umhverfi,
Það er í eðli nemenda okkar að tengjast öðrum og deila með þeim hinu og þessu. En það fylgir því áhætta að deila upplýsingum á netinu. Hvernig getum við hjálpað börnum að byggja upp sterk, jákvæð og örugg tengsl á netinu? Í þessum hluta leitum við leiða til að hjálpa nemendum að greina hvaða upplýsingar eru persónulegar og hvað ætti helst að vera einkamál hvers og eins.
Verkefni um einka- og persónuupplýsingar á vitundin.is
Stafrænt fótspor og auðkenni:
lýst á einfaldan hátt hugtakinu stafrænt fótspor, skilið hvernig það verður til og hvert sé samspil þess og netnotkunar,
Stafrænt fótspor þitt getur haft áhrif á orðspor þitt á netinu í langan tíma. En börn gera sér ekki alltaf grein fyrir því að stafræn fótspor eru ekki bara persónulegt mál. Sýndu nemendum þínum hvernig þeir geta stuðlað að jákvæðu stafrænu orðspori, bæði fyrir sjálfa sig og aðra.
Verkefni um stafræn fótspor á netinu á vitundin.is
Virðing í stafrænu umhverfi:
gert sér grein fyrir mikilvægi þess að leita til fullorðinna ef hætta eða áreiti skapast á netinu,
Félagsleg samskipti eru meðal þess sem gerir netleiki svo vinsæla meðal barna í dag. Vissulega fylgir því nokkur áhætta að hafa samskipti á netinu. Leiðbeinið nemendum ykkar svo upplifun þeirra af því að spila á netinu verði jákvæð, skemmtileg og heilbrigð.
Verkefni um örugga og skemmtilega leiki á vitundin.is
Samskiptareglur, orðræða og virðing í stafrænum samskiptum:
þekkt hugtakið neteinelti og einfaldar reglur í samskiptum og myndbirtingum á netinu og þekkt leiðir til að vernda sig og aðra fyrir neteinelti.
Stafrænn stuðningur:
nefnt dæmi um einfaldan stafrænan stuðning í námi,
Aðgengi að öllum námsbókum sem til eru á hljóðbókaformi frá mms.is er á heimasíðum bekkjanna.
Nemendur fá aðstoð til að breyta letri á tölvunni yfir í Open Sans ef það hentar þeim betur.
Möguleikar aðstoðartækisins Helperbird í Google Chrome vafranum kynntir fyrir þá nemendur sem þurfa þannig aðstoð.
Varðveisla gagna:
gert sér grein fyrir því að í sumum hugbúnaði þarf að vista gögn til að varðveita vinnuna,
Nemendur fá leiðbeiningar um hvar þarf að geyma gögn sem ekki vistast sjálfkrafa.
Nemendur fá leiðbeiningar um hvernig sækja skal skjöl og verkefni sem unnin hafa verið í Google Classroom til að setja inn á heimasíðuna sína.
Tölvur og snjalltæki:
þekkt mismunandi tegundir tölva, snjalltækja og helstu jaðartæki og nýtt til menntunar,
Nemendur hafa aðgang að persónulegri Chrome book tölvu fyrir dagsdaglega vinnu í skólanum.
Í Engjaskóla vinnum við út frá því að tölvur eru vinnutæki í skólanum en ekki leiktæki.
Einnig eru til iPadar í skólanum fyrir verkefni sem nýtast í upptökur og hljóðvinnslu.
Notkun hugbúnaðar og einföld forritun:
þekkt ýmsan hugbúnað og tæki og nýtt þau til að leysa einfaldar þrautir.
Nemendur læra á margvíslegan Google hugbúnað
Einnig eru notaðar vefsíður á netinu eins og Code.org, Typing.com, Hour of Code o.fl.
Nemendur nota Code.org og Hour of Code til að kynnast grunnhugtökum í forritun. Fyrir jólin notum við Santa Tracker sem er google síða með leikjum, m.a. snýst einn leikurinn um kóðun (Code Lab). Allir nemendur klára þann leik.
Skrift og frágangur:
dregið rétt til stafs, skrifað skýrt og læsilega og á lyklaborð,
Æfingar á fingrasetningu á lyklaborð eru m.a. gerðar á þessum vefsíðum:
10 fast fingers (hægt að stilla tungumál)
Hugbúnaður:
hannað einfaldan hlut í þrívíðum hugbúnaði.
Nemendur fá aðgang í gegnum kennara að Tinkercad. Þar förum við yfir grunnatriði í þrívíðri hönnun og nemendur hanna í lokin lítinn hlut sem verður prentaður út í þrívíddarprentara skólans.