6. bekkur
Upplýsinga- og tæknimennt
Upplýsinga- og tæknimennt
Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Nýting skólasafns:
Nýtt skólasafn til þekkingaröflunar í stýrðu námi og á eigin forsendum til gagns og ánægju.
Nemendur nota skólasafnið til að velja sér bækur fyrir heimalestur og yndislestur.
Í ákveðnum verkefnum eru bækur safnsins nýttar til heimildaöflunar.
Upplýsingaleit:
Nýtt leitarvélar, gervigreind og önnur verkfæri á siðferðilegan ábyrgan hátt til upplýsingaöflunar.
Nemendur hafa Chromebook tölvur til afnota í skólanum og geta nýtt sér leitarvélar í verkefnavinnu.
Netið er fullt af vafasömu efni, allt frá sögusögnum og ónákvæmum upplýsingum til beinna lyga og svokallaðra falsfrétta. Hvernig hjálpum við nemendum að grisja út það slæma og finna það sem er trúverðugt? Hjálpið nemendum að rýna í hvers vegna og hvernig falskar upplýsingar enda yfirleitt á netinu og þjálfa upp aðferðir við að greina áreiðanleika þess sem þau finna þar.
Verkefni um falsfréttir á netinu á vitundin.is
Greining og úrvinnsla gagna:
Lagt mat á gæði ýmissa upplýsinga og áttað sig á fjölbreytileika stafræns efnis.
Í heimildavinnu er farið yfir áreiðanleika upplýsinga, hvaða netsíðum er hægt að treysta og hvað ber að varast.
Nemendur fá fræðslu um gæði upplýsinga. Fræðsluefnið heitir Vitundin og Netumferðarskólinn.
Heimildanotkun:
Unnið með heimildir í samræmi við höfundarétt og sett fram einfalda heimildaskrá
Nemendur fá fræðslu um skráningu heimilda samkvæmt kennslubókinni Heimi, handbók um heimildaritun frá mms.is, höfundur Svanhildur Kr. Sverrisdóttir.
Í glæruverkefninu Bókakynning, kynnum við heimildaskráningu á sögubókum sem nemendur nota í heimalestri og yndislestri.
Kynningarefni:
nýtt hugbúnað við gerð margvíslegra kynninga,
Nemendur vinna a.m.k. tvö glæruverkefni (Google slides) á vetri, annað er haustverkefni og nefnist Um mig, 5-7 glærur um fjölskyldu, áhugamál og fleira sem nemandi vill sýna.
Hitt er bókakynning þar sem nemandi velur bók sem nýbúið er að lesa í heimalestri eða yndislestri, segir frá söguþræði bókarinnar, aðal- og aukapersónum, höfundi bókarinnar og hvaða aðrar bækur höfundur hefur skrifað. Nemandi þarf að skrá bókina sem heimild aftast í glærusýningunni. Nemendi þarf svo að kynna bókina sína fyrir samnemendum.
Ritvinnsla:
nýtt hugbúnað við uppsetningu ritunarverkefna samkvæmt viðmiðum um uppsetningu og frágang,
Nemendur vinna nokkur ritunarverkefni með Google Docs yfir veturinn.
Áhersla á að kunna á stillingaramboðin, s.s. að velja letur og stærð leturs, miðja, feitletra, skáletra, gera punktalista, setja inn myndir, töflur o.fl. sem nýtist í ritvinnslu.
Vinnsla tölulegra gagna:
nýtt hugbúnað við gagnasöfnun og framsetningu á tölulegum gögnum,
Nemendur vinna nokkur verkefni í töflureikni, fyrst verkefni til að læra inn á stillingaramboðin og svo í tengslum við tölfræði í Stiku.
Töflureiknir: verkefni í Stiku 2b, bls. 22-23. Upplýsingar settar í töflu og súlurit gert úr upplýsingunum. Upplýsingar settar í töflu og sjálfvirkur útreikningur notaður þegar gögnum er breytt á einum stað.
Ljósmyndir og kvikmyndun:
nýtt tæki og hugbúnað við ljósmyndun og stuttmyndagerð,
Ljósmyndamaraþon þar sem iPad er notaður ásamt ratleik þar sem nemendur leysa þrautir og verkefni, oftast úti ef veður leyfir.
Stuttmynd með iPad og stiklum (trailer). Nemendur fá 3 þemu sem þau velja um og útbúa stiklu um efnið eftir leiðbeiningum frá kennurum.
Myndvinnsla og myndsköpun:
nýtt tæki og hugbúnað við einfalda hönnun, myndvinnslu og myndsköpun,
Inngangur að grafískri hönnun. Til verksins notum við ókeypis vefsíðu með nemendaumsjónarkerfi á netinu sem heitir Canva.
Hljóðvinnsla:
nýtt tæki og hugbúnað við upptökur og einfalda hljóðvinnslu,
byrjar í 7. bekk
Netmiðlun:
nýtt hugbúnað við netmiðlun.
Nemendur útbúa vefsíðu í Google Sites þar sem þau safna saman verkefnum í ýmsum námsgreinum og útbúa vísi að námsmöppu (portfolio).
Jafnvægi í stafrænni notkun og vellíðan:
Hugað að eigin heilsu og vellíðan við notkun stafrænnar tækni og gert sér grein fyrir mikilvægi jafnvægis í skjátíma.
Við notum stafræna miðla daglega, til samskipta, áhorfs og til að spila tölvuleiki. Jafnvel til að panta mat á netinu og túlka samtöl á erlendri tungu. Fyrir börn í dag snýst miðlanotkun um miklu meira en bara skjátíma og afþreyingu. Hvernig getum við hjálpað nemendum okkar að finna jafnvægi í lífi sínu á netinu og í raunheimum? Til að byrja með þurfum við að gera okkur grein fyrir því hversu mikil miðlanotkunin raunverulega er.
Verkefni um jafnvægi í stafrænum heimi á vitundin.is
Friðhelgi og öryggi:
Gert sér grein fyrir mikilvægi þess að vernda persónuupplýsingar og friðhelgi einkalífs í stafrænu umhverfi og áttað sig á hverjum sé hagur af því að safna stafrænum upplýsingum.
Netsvindl er meðal þess sem verður gjarna á vegi fólks sem vafrar um netið en við getum ekki gengið út frá því sem vísu að börn séu meðvituð um það. Hvernig getum við forðað nemendum okkar frá því að smella á varasama tengla eða að gefa upp einkaupplýsingar? Í þessari kennslustund er viðfangsefnið auðkennisþjófnaður á netinu og netveiðar.
Verkefni um netsvindl á vitundin.is
Stafrænt fótspor og auðkenni:
Rætt og útskýrt að öll netnotkun einstaklinga skilur eftir sig spor í stafrænu umhverfi til langframa.
Hvað þýðir það í raun að „vera þú sjálfur“ eða vera „raunverulegur“? Þetta eru djúpar vangaveltur fyrir nemendur miðstigs. Fyrir nemendur í dag gilda þessar spurningar ekki síður á netinu. Hjálpið nemendum ykkar að átta sig á því hvers vegna sumir búa sér til mismunandi persónur eða nýtt sjálf á netinu og á samfélagsmiðlum.
Verkefni um sjálfsmynd í raunheimum og á netinu á vitundin.is
Virðing í stafrænu umhverfi:
Gert sér grein fyrir helstu hættum í stafrænu umhverfi og þekkt vel ólíkar leiðir til að tilkynna ólöglegt og vafasamt efni á netinu og að samfélagsmiðlar hafa áhrif á samskipti.
Tölvuleikir, samfélagsmiðlar og annar vettvangur á netinu gefa nemendum tækifæri til að hittast og spjalla utan þeirra marka sem raunheimar setja. En hversu vel þekkja nemendur í raun fólkið sem þau tala við? Hjálpið nemendum að leggja mat á hverja þau eru að tala við og hvers konar upplýsingum þau deila á netinu.
Verkefni um samfélagsmiðlanotkun á vitundin.is
Samskiptareglur, orðræða og virðing í stafrænum samskiptum:
Nefnt helstu netöryggis- og samskiptareglur og tekið ábyrgð á eigin nethegðun og beitt leiðum til að vernda sig og aðra fyrir neteinelti.
Misskilin samskipti og samskiptaörðugleikar eiga sér gjarna stað á netinu og ekki síst á samfélagsmiðlum. Meðal annars vegna þess að það er oft auðveldara að segja hluti í felum bak við skjá sem maður myndi ekki segja í eigin persónu. Hvernig getum við hjálpað nemendum okkar að forðast að lenda í stafrænum átökum? Í þessu verkefni vinnum við með ráð til að forðast drama á netinu og draga úr því ef til þess kemur.
Verkefni um stafræn átök og hvernig má forðast drama á netinu á vitundin.is
Stafrænn stuðningur:
Nýtt rafrænan stuðning í námi.
Aðgengi að öllum námsbókum sem til eru sem hljóðbækur frá mms.is eru á heimasíðum bekkjanna.
Nemendur fá aðstoð til að breyta letri á tölvunni yfir í Open Sans ef það hentar þeim betur. Open sans er letur sem hentar flestum lesblindum betur en hefðbundið letur.
Möguleikar aðstoðartækisins Helperbird í Google Chrome vafranum kynntir fyrir þá nemendur sem þurfa þannig aðstoð.
Varðveisla gagna:
Flokkað og vistað gögn á öruggan hátt.
Nemendur fá leiðbeiningar um hvar þarf að geyma gögn sem ekki vistast sjálfkrafa.
Nemendur fá leiðbeiningar um hvernig sækja skal skjöl og verkefni sem unnin hafa verið í Google Classroom til að setja inn á heimasíðuna sína.
Tölvur og snjalltæki:
Nýtt mismunandi tegundir tölva, snjalltækja og jaðartækja til menntunar.
Nemendur hafa aðgang að persónulegri Chromebook tölvu fyrir daglega vinnu í skólanum. Í Engjaskóla vinnum við út frá því að tölvur eru vinnutæki í skólanum en ekki leiktæki.
Einnig eru til iPadar í skólanum fyrir verkefni sem nýtast í upptökur og hljóðvinnslu.
Notkun hugbúnaðar og einföld forritun:
Nýtt hugbúnað og tæki á fjölbreyttan hátt og til að leysa fjölbreyttar þrautir. Hafa fengið kynningu á grunnhugtökum í forritun.
Nemendur læra á margvíslegan hugbúnað, svo sem Google Docs, Google Sheets, Google Slides, Google Sites, Tinkercad og Canva.
Einnig eru notaðar vefsíður á netinu eins og Kahoot, Blooket, Typing.com, o.fl.
Nemendur nota Code.org, Hour of Code, Micro-bit og Compute-it.toxicode.fr til að kynnast grunnhugtökum í forritun. Fyrir jólin notum við Santa Tracker sem er google síða með leikjum, m.a. snýst einn leikurinn um kóðun (Code Lab). Allir nemendur klára þann leik.
Skrift og frágangur:
miðlað texta í gegnum sjálfvirka og læsilega skrift og fyrirhafnarlausan innslátt á lyklaborð og gengið frá texta samkvæmt fyrirmælum,
Æfingar á fingrasetningu á lyklaborð eru m.a. gerðar á þessum vefsíðum:
10 fast fingers (hægt að stilla tungumál)