Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Námsmarkmið
Nýting skólasafns:
Nýtt skólasafn til þekkingaröflunar í stýrðu námi og á eigin forsendum til gagns og ánægju.
Nemendur nota skólasafnið til að velja sér bækur fyrir heimalestur og yndislestur.
Í ákveðnum verkefnum eru bækur safnsins nýttar til heimildaöflunar.
Upplýsingaleit:
Nýtt leitarvélar, gervigreind og önnur verkfæri á siðferðilegan ábyrgan hátt til upplýsingaöflunar.
Nemendur hafa Chromebook tölvur til afnota í skólanum og geta nýtt sér leitarvélar í verkefnavinnu.
Nemendur fá fræðslu um gagnsemi og hættur internetsins. Fræðsluefnið heitir Vitundin.
Við bíðum eftir samþykki frá borginni til að kenna nemendum á verkfærið gervigreind.
Greining og úrvinnsla gagna:
Lagt mat á gæði ýmissa upplýsinga og áttað sig á fjölbreytileika stafræns efnis.
Í heimildavinnu er farið yfir áreiðanleika upplýsinga, hvaða netsíðum er hægt að treysta og hvað ber að varast.
Nemendur fá fræðslu um gæði upplýsinga. Fræðsluefnið heitir Vitundin og Netumferðarskólinn.
Heimildanotkun:
Unnið með heimildir í samræmi við höfundarétt og sett fram einfalda heimildaskrá
Nemendur fá fræðslu um skráningu heimilda samkvæmt kennslubókinni Heimi, handbók um heimildaritun frá mms.is, höfundur Svanhildur Kr. Sverrisdóttir. Þau þurfa að skrá heimild í bókakynningaverkefninu.
Kynningarefni:
nýtt hugbúnað við gerð margvíslegra kynninga,
Nemendur vinna a.m.k. tvö skyggnuverkefni (Google slides) á vetri, annað er haustverkefni og nefnist Sumarfríið mitt, 5 skyggnur, fyrirmæli gefin á Classroom.
Hitt er bókakynning þar sem nemandi velur bók sem nýbúið er að lesa í heimalestri eða yndislestri, segir frá söguþræði bókarinnar, aðal- og aukapersónum, höfundi bókarinnar og hvaða aðrar bækur höfundur hefur skrifað. Nemandi þarf að skrá bókina sem heimild aftast í skyggnusýningunni. Nemendi þarf svo að kynna bókina sína fyrir samnemendum.
Ritvinnsla:
nýtt hugbúnað við uppsetningu ritunarverkefna samkvæmt viðmiðum um uppsetningu og frágang,
Nemendur vinna nokkur ritunarverkefni með Google Docs yfir veturinn.
Áhersla á að kunna á stillingaramboðin, s.s. að velja letur og stærð leturs, miðja, feitletra, skáletra, gera punktalista, setja inn myndir, töflur o.fl. sem nýtist í ritvinnslu.
Fingrasetning er æfð reglulega. Fingrafimi af vef mms.is er notuð ásamt erlendum síðum s.s. typing.com og 10fastfingers.com.
Vinnsla tölulegra gagna:
nýtt hugbúnað við gagnasöfnun og framsetningu á tölulegum gögnum,
Nemendur vinna nokkur verkefni í töflureikni, fyrst verkefni til að læra inn á stillingaramboðin og svo í tengslum við tölfræði í Stiku.
Töflureiknir: verkefni 1, verkefni 2, verkefni 3
Stika 1a, kafli 2 um tölfræði bls. 46-61
(verkefnin á bls. 50-51).
Ljósmyndir og kvikmyndun:
nýtt tæki og hugbúnað við ljósmyndun og stuttmyndagerð,
Byrjar í 6. bekk en einnig er boðið upp á val í stuttmyndagerð á miðstigi.
Myndvinnsla og myndsköpun:
nýtt tæki og hugbúnað við einfalda hönnun, myndvinnslu og myndsköpun,
Samvinnuverkefni með textílkennara. Nemendur sauma sér sundpoka hjá textílkennara. Nemendur fá kennslu í útsaumi og eiga að skreyta aðra eða báðar hliðar með útsaumi.
Nemendur fá tækifæri til að hanna texta/mynd til að setja með útsaumnum eða á hina hliðina. Við notum hugbúnað með Cricut skurðarvél við hönnunina og síðan er vínilfilman skorin út og straujuð á pokann.
Hljóðvinnsla:
nýtt tæki og hugbúnað við upptökur og einfalda hljóðvinnslu,
Byrjar í 7. bekk þar sem nemendur skrifa handrit og taka upp hlaðvarp.
Netmiðlun:
nýtt hugbúnað við netmiðlun.
Nemendur útbúa vefsíðu í Google Sites þar sem þau safna saman verkefnum í ýmsum námsgreinum og útbúa vísi að námsmöppu (portfolio).
Jafnvægi í stafrænni notkun og vellíðan:
Hugað að eigin heilsu og vellíðan við notkun stafrænnar tækni og gert sér grein fyrir mikilvægi jafnvægis í skjátíma.
Það er mikilvægt að kenna börnum að taka skynsamlegar ákvarðanir um miðlanotkun sína. En hvernig hjálpum við þeim að taka ábyrgar ákvarðanir í raunveruleikanum? Hér eiga nemendur að búa til áætlun um eigin miðlanotkun.
Friðhelgi og öryggi:
Gert sér grein fyrir mikilvægi þess að vernda persónuupplýsingar og friðhelgi einkalífs í stafrænu umhverfi og áttað sig á hverjum sé hagur af því að safna stafrænum upplýsingum.
Netið er fullt af grípandi fyrirsögnum og svakalegum myndum sem eru til þess gerðar að vekja forvitni og athygli. Börn gera sér ekki alltaf grein fyrir því að það sem þú smellir á er ekki alltaf það sem þú færð. Í þessari lotu læra nemendur leiðir til þess að forðast smellibeitur á netinu.
Stafrænt fótspor og auðkenni:
Rætt og útskýrt að öll netnotkun einstaklinga skilur eftir sig spor í stafrænu umhverfi til langframa.
Börn upplifa alls kyns staðalímyndir í miðlum. En eru þau meðvituð um það sem þau sjá? Við þurfum að styðja nemendur okkar í gagnrýninni hugsun um þær staðalímyndir kynjanna sem þau mæta á netinu og hvernig þær hafa áhrif á þá sýn sem þau hafa á sjálf sig og aðra.
Virðing í stafrænu umhverfi:
Gert sér grein fyrir helstu hættum í stafrænu umhverfi og þekkt vel ólíkar leiðir til að tilkynna ólöglegt og vafasamt efni á netinu og að samfélagsmiðlar hafa áhrif á samskipti.
Börn eiga til að eignast vini hvar sem þau koma, þar á meðal á netinu. En er þessi vinátta alltaf sama eðlis? Hvernig geta börn stofnað til vináttu á netinu og á sama tíma lært að huga að netöryggi? Hjálpið nemendum að öðlast skilning bæði á kostum og hættum við vináttu á netinu.
Verkefni um vináttu á netinu á vitundin.is
Samskiptareglur, orðræða og virðing í stafrænum samskiptum:
Nefnt helstu netöryggis- og samskiptareglur og tekið ábyrgð á eigin nethegðun og beitt leiðum til að vernda sig og aðra fyrir neteinelti.
Það er því miður staðreynd að neikvæðni, dónaskapur og andstyggileg hegðun þrífst víða á netinu. En hvað af þessu flokkast sem neteinelti? Í þessum hluta læra nemendur að skilgreina hvað telst til neteineltis og hvað ekki. Þeir fá einnig verkfæri sem nýtast í baráttunni gegn neteinelti.
Verkefni um neteinelti á vitundin.is
Stafrænn stuðningur:
Nýtt rafrænan stuðning í námi.
Aðgengi að öllum námsbókum sem til eru sem hljóðbækur frá mms.is er á heimasíðum bekkjanna.
Nemendur fá aðstoð til að breyta letri á tölvunni yfir í Open Sans lesblinduletur ef það hentar þeim betur.
Möguleikar aðstoðartækisins Helperbird í Google Chrome vafranum kynntir fyrir þá nemendur sem þurfa þannig aðstoð. Google viðbótin Read Aloud er í vafra hjá öllum nemendum með Chromebook tölvur.
Varðveisla gagna:
Flokkað og vistað gögn á öruggan hátt.
Nemendur fá leiðbeiningar um hvar þarf að geyma gögn sem ekki vistast sjálfkrafa.
Nemendur fá leiðbeiningar um hvernig sækja skal skjöl og verkefni sem unnin hafa verið í Google Classroom til að setja inn á heimasíðuna sína.
Tölvur og snjalltæki:
Nýtt mismunandi tegundir tölva, snjalltækja og jaðartækja til menntunar.
Nemendur hafa aðgang að persónulegri Chromebook tölvu fyrir daglega vinnu í skólanum.
Í Engjaskóla vinnum við út frá því að tölvur eru vinnutæki í skólanum en ekki leiktæki.
Einnig eru til iPadar í skólanum fyrir verkefni sem nýtast í upptökur og hljóðvinnslu.
Nemendur gera verkefni í Tinkercad sem hægt er að þrívíddarprenta. Verkefni er lyklakippa í ákveðinni stærð með texta að eigin vali.
Samvinnuverkefni með textílmennt, nemendur sauma sundpoka, gera útsaum að eigin vali í pokann og mega svo hanna mynd/texta í Cricut Design Space sem hægt er að skera út í vínilstraufilmu í Cricut skurðarvél. Vélin okkar heitir Cricut Maker.
Notkun hugbúnaðar og einföld forritun:
Nýtt hugbúnað og tæki á fjölbreyttan hátt og til að leysa fjölbreyttar þrautir. Hafa fengið kynningu á grunnhugtökum í forritun.
Nemendur læra á margvíslegan hugbúnað, svo sem Google Docs, Google Sheets, Google Slides, Google Sites og Tinkercad.
Einnig eru notaðar vefsíður á netinu eins og Kahoot, Blooket, Typing.com, o.fl.
Nemendur nota Code.org, Hour of Code og Micro-bit til að kynnast grunnhugtökum í forritun. Fyrir jólin notum við Santa Tracker sem er google síða með leikjum, m.a. snýst einn leikurinn um kóðun (Code Lab). Allir nemendur klára þann leik.
Skrift og frágangur:
Miðlað texta í gegnum sjálfvirka og læsilega skrift og fyrirhafnarlausan innslátt á lyklaborð og gengið frá texta samkvæmt fyrirmælum.
Æfingar á fingrasetningu á lyklaborð eru m.a. gerðar á þessum vefsíðum:
typing.com (kennari býr til aðgang)
10 fast fingers (hægt að stilla tungumál)
Hugbúnaður:
nýtt hugbúnað við hönnun tvívíðra og þrívíðra forma,
Nemendur hanna þrívíðan hlut í Tinkercad og tvívíðan hlut í Cricut Design Space.