25.3
Matsviðmið eru sett fram fyrir allar námsgreinar og námssvið við lok 4., 7. og 10. bekkjar. Þau eru lýsing á hversu vel nemandi hefur skilgreinda hæfni á valdi sínu. Skólum ber að setja matsviðmið fyrir námsgreinar og námssvið annarra árganga og gera grein fyrir þeim í skólanámskrá.
Matsviðmið eru birt á A–D matskvarða. A lýsir framúrskarandi hæfni, B lýsir góðri hæfni, C sæmilegri hæfni og D hæfni sem nær ekki viðmiðum sem lýst er í C. Gera má ráð fyrir að þorri nemenda nái þeirri hæfni sem tilgreind er í B, hæfni náð, þar sem þau eru byggð á hæfniviðmiðum árgangsins.
A fá þeir sem sýna framúrskarandi hæfni og C þeir sem ekki standast fyllilega þær kröfur sem gerðar eru í B viðmiðum. Ekki eru sett viðmið fyrir D, en sá vitnisburður er notaður þegar nemandi uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru í C viðmiðum. Skóli gerir þá sérstaka grein fyrir hæfni viðkomandi nemanda.
A–D matskvarða og matsviðmið er skólum skylt að nota við brautskráningu nemenda úr 10. bekk.
A–D matskvarða og matsviðmiðum við lok 4. og 7. bekkjar er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir skóla og eru einungis sett fram til að styðja við námsmat við lok yngsta stigs og miðstigs.
Námsmat: Aðferðir leiðsagnarnáms eru nýttar þar sem lögð er áhersla á vaxandi hugarfar, árangursríka samvinnu og gagnvirkan lestur.
Upplýsingum um námsmat er haldið til haga í Mentor.
Nemendur fá umsögn í metanlegum hæfniviðmiðum sem eru sýnileg í Mentor.
Leiðsagnarnám: Áhersla er lögð á fjölbreyttar vinnuaðferðir í einstaklings, para og hópvinnu. Mikil samþætting er í námi nemenda og er reynt að tengja lestur við sem flestar námsgreinar.
Aðferðir leiðsagnarnáms eru nýttar þar sem lögð er áhersla á vaxandi hugarfar, árangursríka samvinnu og gagnvirkan lestur.
A Framúrskarandi hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.
B+ Notað þegar hæfni er sambærileg þeirri lýsingu sem á við einkunnina B og að hluta til þeirri lýsingu sem á við einkunnina A.
B Góð hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.
C+ Notað þegar hæfni er sambærileg þeirri lýsingu sem á við einkunnina C og að hluta til þeirri lýsingu sem á við einkunnina B.
C Sæmileg hæfni og frammistaða í námi með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs.
D Hæfni og frammistöðu í námi ábótavant með hliðsjón af hæfniviðmiðum námsgreinar eða námssviðs
Við styðjumst við A-D matskvarða í flestum tilfellum en sum verkefni eru þess eðlis að 1-10 (1-100) kvarði eða Lokið/ólokið á betur við.
Nemandi getur af öryggi tjáð sig um stærðfræði, beitt stærðfræðitáknum, hlutbundnum gögnum og hugtökum. Fumlaust reiknað og beitt náttúrulegum tölum á hlutbundinn og óhlutbundinn hátt. Notað tugakerfið af öryggi og sett lausnir fram á réttan hátt. Á fumlausan hátt greint mynstur í talnarunum og myndum og tjáð sig um reglur þeirra. Leyst einfaldar jöfnur. Unnið á sjálfstæðan hátt með rúmfræðileg hugtök, mælt, teiknað, greint og skapað rúmfræðilega hluti. Beitt að nokkru leyti ólíkum reikniaðgerðum og mælieiningum og nýtt sér samhengi og tengsl þeirra við útreikninga og mat á þeim. Framkvæmt rannsóknir úr daglegu lífi í samvinnu við aðra og lesið úr þeim. Safnað upplýsingum, miðlað þeim og dregið ályktanir. Gert tilraunir með líkur og tjáð sig um niðurstöður þeirra.
Nemandi getur með aðstoð tjáð sig um stærðfræði, leyst stærðfræðileg viðfangsefni, beitt stærðfræðitáknum, hlutbundnum gögnum og hugtökum. Reiknað og beitt náttúrulegum tölum á hlutbundinn og óhlutbundinn hátt. Notað tugakerfið og sett lausnir fram á réttan hátt. Greint mynstur í talnarunum og myndum og tjáð sig um reglur þeirra. Leyst einfaldar jöfnur. Unnið með rúmfræðileg hugtök, mælt, teiknað, greint og skapað rúmfræðilega hluti. Beitt að nokkru marki ólíkum reikniaðgerðum og mælieiningum. Framkvæmt rannsóknir úr daglegu lífi í samvinnu við aðra og lesið úr þeim, safnað upplýsingum og miðlað þeim. Gert einfaldar tilraunir með líkur og skráð niðurstöður þeirra.
Nemandi getur með aðstoð tjáð sig um stærðfræði, leyst stærðfræðileg viðfangsefni, beitt stærðfræðitáknum, hlutbundnum gögnum og hugtökum. Reiknað og beitt náttúrulegum tölum á hlutbundinn og óhlutbundinn hátt. Notað tugakerfið og sett lausnir fram á réttan hátt. Greint mynstur í talnarunum og myndum og tjáð sig um reglur þeirra. Leyst einfaldar jöfnur. Unnið með rúmfræðileg hugtök, mælt, teiknað, greint og skapað rúmfræðilega hluti. Beitt að nokkru marki ólíkum reikniaðgerðum og mælieiningum. Framkvæmt rannsóknir úr daglegu lífi í samvinnu við aðra og lesið úr þeim, safnað upplýsingum og miðlað þeim. Gert einfaldar tilraunir með líkur og skráð niðurstöður þeirra.
Nemandi getur á fumlausan hátt beitt hugtökum sem eru einkennandi fyrir stærðfræðina í daglegu lífi, rætt lausnir sínar og tjáð sig um þær. Beitt af öryggi og sjálfstæði hlutbundnum gögnum við lausnir verkefna. Verið leiðandi í að þróa hentugar aðferðir við lausnir verkefna. Beitt fumlaust og á sjálfstæðan hátt ólíkum reikniaðgerðum og nýtt sér samhengi og tengsl þeirra við útreikninga og mat á þeim. Unnið með, rannsakað og lýst mynstrum, leyst jöfnur og ójöfnur. Notað bókstafi fyrir óþekktar stærðir og nýtt sér af öryggi reglur algebrunnar við reikning. Beitt af öryggi og á fjölbreyttan hátt undirstöðuhugtökum rúmfræðinnar. Fumlaust teiknað, greint og skapað rúmfræðilega hluti. Sýnt fram á góð tök á mælingum og mælieiningum. Safnað upplýsingum og framkvæmt tölfræðirannsóknir einn og í samvinnu við aðra, lesið úr þeim, miðlað og dregið af þeim ályktanir.
Nemandi getur beitt hugtökum sem eru einkennandi fyrir stærðfræðina í daglegu lífi, rætt lausnir sínar og tjáð sig um þær. Beitt hlutbundnum gögnum við lausnir verkefna. Tekið þátt í að þróa hentugar aðferðir við lausnir verkefna. Beitt ólíkum reikniaðgerðum og nýtt sér tengsl þeirra við útreikninga og mat á þeim. Unnið með mynstur og leyst jöfnur og ójöfnur. Notað bókstafi fyrir óþekktar stærðir og nýtt sér reglur algebrunnar við reikning. Beitt á fjölbreyttan hátt undirstöðuhugtökum rúmfræðinnar. Teiknað, greint og skapað rúmfræðilega hluti. Sýnt fram á að hafa náð tökum á mælingum og mælieiningum. Safnað upplýsingum og framkvæmt tölfræðirannsóknir einn og í samvinnu við aðra, sett þær fram á myndrænan hátt og útskýrt niðurstöður sínar.
Nemandi getur með stuðningi beitt og tjáð sig um hugtök sem eru einkennandi fyrir stærðfræðina í daglegu lífi og rætt lausnir sínar. Unnið skipulega að stærðfræðilegum verkefnum með leiðsögn. Beitt einföldum reikniaðgerðum og nýtt sér hlutbundin gögn við lausnir verkefna. Unnið með mynstur og leyst jöfnur með aðstoð eða eftir leiðbeiningum. Notað bókstafi fyrir óþekktar stærðir og nýtt sér reglur algebrunnar við reikning með aðstoð eða eftir leiðbeiningum. Beitt undirstöðuhugtökum rúmfræðinnar. Með aðstoð teiknað og greint rúmfræðilega hluti. Sýnt fram á að hafa nokkuð góð tök á mælingum og mælieiningum. Með aðstoð safnað upplýsingum og framkvæmt tölfræðirannsóknir, sett þær fram á myndrænan hátt og útskýrt niðurstöður sínar.