6. bekkur
Upplýsingar varðandi skólasund
Nemendur mæta í sund einu sinni í viku 40 mínútur í senn allt skólaárið,á þriðjudögum.
Sundkennslan fer fram í Grafarvogslaug, útilaug.
Mikilvægt er að nemendur mæti með sundfatnað (ekki bikiní) og sundgleraugu.
Gott er að hafa teygju í síðu hári.
Vinsamlegast merkið allan fatnað / handklæði / sundpoka með nafni og símanúmeri.
Árgangnum er skipt í tvo hópa í sundkennslunni og athugið að nemendur eru ekki alltaf í sama hópi.
Hópur 1 Hópur 2
Rúta fer frá skóla kl: 11:35 Rúta fer frá skóla kl: 12:15
Tími hefst í Grafarvogslaug kl. 11:45 Tími hefst í Grafarvogslaug kl. 12:25
Rúta fer frá Grafarvogslaug kl. 12:40 Rúta fer frá Grafarvogslaug kl. 13:20
Það sem nemendur þurfa að geta framkvæmt í lok skólaárs:
200 m bringusund
50 m skólabaksund
50 m skriðsund
25 m baksund
25 m bringusund á tíma
15 m björgunarsund (skólabaksundsfótatök)
8 m kafsund
12 m flugsund
Stunga af bakka
Til að ná góðum árangri er mikilvægt að nemendur fari í sund öðru hvoru og æfi sig.