Upplýsingar varðandi skólasund
Athugið að síðan er ennþá í vinnslu
Forföll nemenda þarf að tilkynna áður en kennsla hefst að morgni.
Nemendur mæta í sund einu sinni í viku 40 mínútur í senn allt skólaárið,á fimmtudögum.
Sundkennslan fer fram í Grafarvogslaug, útilaug.
Mikilvægt er að nemendur mæti með sundfatnað (ekki bikiní) og sundgleraugu.
Gott er að hafa teygju í síðu hári.
Vinsamlegast merkið allan fatnað þ.e. sundfatnað, handklæði, sundpoka með nafni og símanúmeri.
Árgangnum er skipt í tvo hópa í sundkennslunni og athugið að nemendur eru ekki alltaf í sama hópi.
Hópur 1 Hópur 2
Rúta fer frá skóla kl: 12:20 Rúta fer frá skóla kl: 13:00
Tími hefst í Grafarvogslaug kl. 12:30 Tími hefst í Grafarvogslaug kl. 13:10
Rúta fer frá Grafarvogslaug kl. 13:25 Rúta fer frá Grafarvogslaug kl. 14:05
✔ 75 m bringusund
✔ 25 m skólabaksund
✔ 25 m skriðsund
✔ 25 m baksund
✔ Stunga af bakka
✔ Hlutur sóttur á 1-2 m dýpi eftir fimm metra sund
✔ Troða marvaða í 20-30 sekúndur
✔ 10 m flugsundsfótatök
✔ Fatasund, Upplýsingar koma síðar
Til að ná góðum árangri er mikilvægt að nemendur fari í sund með foreldrum / forráðamönnum öðru hvoru og æfi sig.