Upplýsingar varðandi skólasund
Forföll nemenda þarf að tilkynna áður en kennsla hefst að morgni.
Nemendur mæta í sund, einu sinni í viku 40 mínútur í senn allt skólaárið, á fimmtudögum.
Sundkennslan fer fram í Grafarvogslaug, innilaug.
Mikilvægt er að nemendur mæti með sundfatnað (ekki bikiní) og sundgleraugu.
Gott er að hafa teygju í síðu hári.
Vinsamlegast sendið börnin í fatnaði sem þau ráða vel við,
að klæða sig í og úr.
Merkið allan fatnað þ.e. handklæði, sundpoka með nafni og símanúmeri.
Staðið í botni og andað að sér, andlitið fært í kaf og andað frá sér endurtekið 10 sinnum
Flot á bringu eða baki
Ganga með andlit í kafi 2,5 metra eða lengra
Bringusundsfótatök
Skriðsundsfótatök
Hoppa af bakka út í laug
Árgangnum er skipt í tvo hópa í sundkennslunni.
Hópur 1 Hópur 2
Rúta frá skóla kl: 08:30 Rúta frá skóla kl: 09:10
Tími hefst kl. 08:40 Tími hefst kl. 09:20
Rúta frá laug kl. 09:35 Rúta frá laug kl. 10:15