Miðvikudaginn 4. febrúar var haldið skólaþing í Háaleitisskóla þar sem nemendur úr 1.–10. bekk komu saman til að ræða skólastarfið, líðan nemenda og hugmyndir að umbótum. Þrír fulltrúar úr hverjum bekk tóku þátt. Fulltrúi á skólaþingi er rödd bekkjarins. Hlutverk hans eða hennar er að tala fyrir hönd allra nemenda í bekknum – ekki aðeins sjálfan sig.
Á skólaþinginu var nemendum skipt í átta hópa sem róteruðu á milli átta stöðva. Á hverri stöð ræddu hóparnir spurningar, hlustuðu hver á annan og skráðu niður hugmyndir sínar. Umræður voru líflegar, uppbyggilegar og sýndu skýrt að nemendur í Háaleitisskóla hafa bæði sterkar skoðanir og mikinn vilja til að taka þátt í að móta skólasamfélagið sitt. Hugmyndir og ábendingar nemenda verða nú nýttar áfram í skólastarfinu í anda lýðræðis, þátttöku og réttinda barna.
1. Öryggi og vellíðan
Nemendur telja mikilvægt að fullorðnir taki eftir þegar einhver er einn eða líður illa. Helstu hugmyndir:
Kennarar spyrji nemendur reglulega hvernig þeim líður.
Fylgjast betur með í frímínútum, sérstaklega með nemendum sem eru einmana.
Hjálpa nemendum að finna vini eða hóp til að leika við.
Hafa fleiri kennara úti í frímínútum.
Búa til stað þar sem einmana nemendur geta farið til að finna leikfélaga.
2. Skólalóð og leiksvæði
Margir nemendur vilja meiri og fjölbreyttari leik- og hreyfiaðstöðu. Algengar hugmyndir:
Fleiri rólur, rennibrautir og aparólur, Trampólín eða ærslabelg, Kastala og sandkassa með leikföngum, Zip-line eða fleiri hreyfileiki, Stærri fótbolta- og körfuboltavelli, Fleiri staði til að hita sig eða fela sig í leikjum.
3. Skólalíðan
Nemendur nefndu að þeim líði illa í ákveðnum aðstæðum, til dæmis:
þegar einhver er skilinn útundan, þegar kennarar öskra á nemendur, þegar það er mikið drama eða stríðni, þegar nám er mjög erfitt eða leiðinlegt, þegar veðrið er slæmt en samt þarf að fara út
Tillögur nemenda:
meiri virðing og góð samskipti
minna öskur og meira rólegt umhverfi
leyfa heyrnartól eða aðrar leiðir til að draga úr hávaða
4. Nám og kennsluaðferðir
Nemendur segja að þeir læri best þegar:
kennarar útskýra verkefni vel
þeir fá hjálp þegar þeir þurfa
unnið er í hópum eða með vinum
það er vinnufriður í bekknum
verkefni eru skemmtileg eða tengjast leikjum eða tækni
stundum má hlusta á tónlist eða nota heyrnartól
5. Samskipti og vinátta
Til að tryggja að enginn sé skilinn útundan nefndu nemendur:
bjóða öllum að vera með
hjálpa þeim sem eru einir
kennarar fylgist með vinahópum
hópverkefni þar sem hópar eru blandaðir
sýna virðingu og tala fallega við hvert annað
6. Aðstaða í skólahúsinu
Nemendur vilja ýmsar breytingar inni í skólanum, t.d.:
betri og fleiri salerni
róleg herbergi fyrir þá sem þurfa kyrrð
kósýrými með sófum
lengri frímínútur og matartíma
betra matvælaúrval
fleiri leiktæki og stærra leiksvæði
7. Rödd nemenda og þátttaka
Nemendur vilja að allir fái að tjá sig, líka þeir sem eru feimnir. Tillögur:
gefa öllum tækifæri til að tala
vinna í litlum hópum
skrifa hugmyndir á blöð eða plakat
kennari spyrji alla álits
tala við nemendur einstaklingslega ef þeir eiga erfitt með að tala fyrir framan hóp
8. Hvenær líður nemendum best?
Nemendum líður best í skólanum þegar:
þeir eru í frímínútum eða úti að leika
í íþróttum eða sundi
í skemmtilegum tímum eins og nýsköpun eða heimilisfræði
í þemavikum eða sérstökum dögum
þegar þeir geta verið með vinum sínum
þegar umhverfið er rólegt, t.d. á bókasafni
Helstu niðurstöður í stuttu máli
Nemendur leggja mesta áherslu á að enginn sé skilinn útundan, að fullorðnir fylgist betur með líðan nemenda, meira og skemmtilegra leiksvæði, rólegra námsumhverfi og skýrari kennslu og fleiri tækifæri til að segja skoðanir sínar.
Háaleitisskóli tekur þátt í UNICEF-verkefninu: „Sjötta hvert barn“
Háaleitisskóli er réttindaskóli UNICEF og í ár beinum við sjónum okkar að þeirri alvarlegu staðreynd að eitt af hverjum sex börnum í heiminum býr við afleiðingar stríðs og átaka.
Við tökum þátt í þessu mikilvæga málefni með því að vera hluti af myndlistasýningunni „Sjötta hvert barn“ á vegum UNICEF á Íslandi, sem haldin verður þann 20. nóvember, á Alþjóðadegi barna. Sýningin fer fram í Reykjavík og verður meðal stærstu myndverkasýninga sem settar hafa verið upp hér á landi. Hún verður jafnframt sett upp á veggjum Háaleitisskóla.
Nemendur í 5., 6. og 7. bekk Háaleitisskóla tóku þátt í verkefninu undir handleiðslu Silviu V. Björgvinsdóttur, myndmenntakennara skólans. Þátttakan fólst í því að nemendur teiknuðu mynd af barni – hvort sem var sjálfsmynd eða ímyndað barn.
Sýningin ber ekki aðeins listaverkin sjálf fram, heldur einnig kraftmikla skilaboð:
Sjötta hver mynd verður sérstaklega merkt til að sýna fram á þann raunveruleika að sjötta hvert barn í heiminum lifir við afleiðingar stríðs og átaka.
UNICEF Hreyfingin er fræðslu- og fjáröflunarverkefni fyrir grunnskólabörn á Íslandi. Markmið þess er að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og virkja þau til samstöðu með jafnöldrum sínum víða um heim.
Í ár safnaði UNICEF á Íslandi saman spurningum barna um stríð og áhrif þess á börn. Í myndbandinu svarar Ævar Þór Benediktsson, sendiherra UNICEF á Íslandi nokkrum af þessum spurningum sem tengjast lífi barna sem búa á stríðshrjáðum svæðum. Allir nemendur Háaleitisskóla horfðu á myndbandið og það leiddi af sér góðar og uppbyggilegar umræður.
Miðvikudaginn 28. maí var uppbrot á skólastarfinu frá kl. 10:00 til 11:15 þar sem UNICEF-hreyfingin fór fram. Settar voru upp stöðvar víðsvegar um og við skólann, þar sem boðið var upp á fjölbreytta og skemmtilega hreyfingu. Meðal annars voru dansstöð, skot á mark, armbeygjur, reipitog, froskahopp, staðbundið skokk og blöðrukeppni.
Nemendur söfnuðu svo límmiðum í heimspassann sinn þegar þau höfðu lokið við verkefnið á hverri stöð. Áður en nemendur tóku þátt í UNICEF - Hreyfingunni fengu þau fræðslu um réttindi sín og ólíkar aðstæður jafnaldra sinna í öðrum löndum.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir.
Háaleitisskóli fékk endurmat á viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF. Endurmatið fer fram á þriggja ára fresti. Nemendur mættu á sal skólans og hlustuðu á ávörp, söng og tónlistaratriði. Ávörpin fóru fram á þrem tungumálum, íslensku, ensku og spænsku. Að lokum kom réttindaráð upp og tók við viðurkenningunni frá fulltrúm frá UNICEF á Íslandi.
Skiptist í tvo hluta: bekkurinn og skólinn.
Bekkurinn – undirbúningur fyrir þingið fór fram 2. febrúar 2024.
Kennarar völdu fimm spurninga til að ræða um inn í bekkjunum. Nemendum var skipt í 4-5 manna hópa. Þau fengu fyrirfram gefnar spurningar sem þau öll svöruðu og greindu svo hinum hópunum frá svörunum.
Kennari útskýrði hvernig þingið mun fara fram og markmiðið með því. Nemendur voru hvattir til að taka virkan þátt í umræðum og segja sínar skoðanir.
Kennari varpaði fram nokkrum spurningum til að hita nemendur upp og þeir fengu tækifæri til að átta sig á hvernig þingið gengur fyrir sig.
Skólaþingið inn í matsalnum fór fram 5. febrúar 2024
Nemendum var skipt í hópa. Hópstjórinn fékk iPad til að skrifa svörin inn á Padlet.
Spurningar fyrir yngsta og mið stigið voru eftirfarandi:
Hvernig er góður kennari?
Hvernig finnst ykkur best að læra í skólanum?
Hvað finnst ykkur mikilvægast að læra í skólanum?
Hverju mynduð þið vilja breyta í skólareglunum okkar? Af hverju?
Hvernig mynduð þið vilja hafa námsmatið ykkar? (Próf, umræður, verkefni, ipad, símat, o.fl.)
Spurningar fyrir unglinga stigið voru eftirfarandi:
Hvernig er góður kennari?
Hvernig finnst ykkur best að læra í skólanum?
Hvað finnst ykkur mikilvægast að læra í skólanum?
Hverju mynduð þið vilja breyta í skólareglunum okkar? Af hverju?
Hvernig mynduð þið vilja hafa námsmatið ykkar? (Próf, umræður, verkefni, ipad, símat, o.fl.)
Hvað vantar á unglingastigs ganginn?
UNICEF - Hreyfingin er fræðslu- og fjáröflunarverkefni fyrir grunnskólabörn á Íslandi. Markmið þess er að fræða börn um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og virkja þau til samstöðu með jafnöldrum sínum víða um heim. Börnin fá vandaða fræðslu um réttindi sín, störf UNICEF í þágu allra barna og ólíkar aðstæður jafnaldra sinna í öðrum löndum. Hugmyndin er að þau átti sig á að öll börn eiga sömu réttindi og að saman geti þau lagt sitt af mörkum til að gera heiminn að betri stað.
Hressir nemendur á mið og unglingastigi í Háaleitisskóla tóku þátt í Unicef hreyfingunni í fyrsta skipti í ár. Þann 26. september 2023 héldum við upp á sérstakan viðburð þar sem nemendur fóru í gegnum 9 stöðvar til að safna límmiðum. Viku fyrr fengu nemendur heim með sér áheitablöð þar sem þeir gátu safnað áheitum til styrktar Unicef.
Við viljum þakka fyrir að taka virkan þátt og hvetjum endilega til að styrkja gott málefni í leiðinni.
Styrkja má hér:
https://sofnun.unicef.is/participant/haaleitisskoli-hreyfingin-2023