Miðvikudaginn 22. janúar 2020, skrifuðu forsvarsmenn UNICEF á Íslandi og Háaleitisskóla í Reykjanesbæ undir formlegan samstarfssamning um að Háaleitisskóli verði fyrsti skólinn á Suðurnesjum til að verða Réttindaskóli UNICEF. Viðstödd undirritunina voru, Bergsteinn Jónsson framkvæmdarstjóri UNICEF, Pétur Hjörvar Þorkelsson réttindafræðslufulltrúi, Jóhanna Sævarsdóttir skólastjóri Háaleitisskóla, Elíza Newman deildarstjóri Háaleitisskóla ásamt kennurum í UNICEF teymi skólans.
Í haust það ár hóf Háaleitisskóli þátttöku í tilraunaverkefni sem miðar að því að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna inn í allt skóla- og frístundastarf. Verkefnið kallast Réttindaskóli og Réttindafrístund UNICEF og er alþjóðlegt vottunarverkefni sem hefur síðastliðinn áratug verið innleitt með góðum árangri í þúsundum skóla um allan heim. Skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar sem taka þátt í verkefninu geta öðlast viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Réttindaskólar og Réttindafrístund.
Að vera Réttindaskóli UNICEF felur í sér að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er lagður til grundvallar í öllu skólastarfi. Markmiðið er að byggja upp lýðræðislegt námsumhverfi, efla jákvæð samskipti, auka þekkingu á mannréttindum og stuðla að gagnkvæmri virðingu innan skólasamfélagsins. Með verkefninu er einnig skapaður rammi utan um þau ólíku sjónarhorn, stefnur og gildi sem skólum er ætlað að vinna eftir, svo sem aðalnámskrá grunnskóla, grunnskólalög og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna – sem var lögfestur hér á landi árið 2013.
Rannsóknir sem gerðar hafa verið í meira en 1.600 Réttindaskólum í Bretlandi hafa sýnt afar jákvæðar niðurstöður. Einelti og ofbeldi í skólunum minnkaði, börnin sýndu aukið umburðarlyndi og skilning á fjölbreytileika, líðan barna batnaði og starfsánægja fullorðinna jókst umtalsvert. Og það sem er líka mikilvægt, umræða um réttindi barna og Barnasáttmálann átti sér stað inni á heimilum barnanna.
Háaleitisskóli á Ásbrú í Reykjanesbæ hlaut þann 18. nóvember 2021 viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF.
Háaleitisskóli er fyrsti skólinn á Suðurnesjunum til að hljóta viðurkenningu UNICEF og hefur skólinn unnið að þessum áfanga síðustu tvö ár með fjölbreyttum verkefnum og markvissri vinnu þar sem réttindi barna eru höfð í fyrirrúmi. Barnasáttmálinn er inni öllum stofum skólans og allir bekkir útbúa sinn eigin bekkjasáttmála þar sem barnasáttmálinn er undirstaðan. Skólastjórinn kveðst stoltur af viðurkenningunni.
„Við erum afar stolt af því að fá viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF. Nemendur og starfsfólk skólans hafa unnið ötullega að því að ná því markmiði síðustu misseri að ákvæði Barnasáttmálans séu samofin inn í allt daglegt skólastarf. Það ber að þakka þeim allt þeirra óeigingjarna og góða starf sem leitt hefur til þessarar viðurkenningar. Það er mikilvægt að öll börn þekki rétt sinn og séu efld til virkrar þátttöku í lýðræðislegu samfélagi. Raddir barna eru mikilvægar fyrir framþróun hvers samfélags og mikilvægt að grundvallar mannréttindum þeirra sé mætt í öllu skólastarfi. Börnunum og samfélaginu öllu til heilla.“
Háaleitisskóli hlaut einnig hvatningaverðlaun fræðsluráðs Reykjansesbæjar á síðasta ári fyrir þetta sama verkefni. Í næstu viku verður svo haldið skólaþing til að halda upp á dag mannréttinda barna þar sem allir bekkir skólans fá að koma sínum sjónamiðum á framfæri til að bæta sitt skólaumhverfi.