Við orðakennslu þarf að huga að ýmsum þáttum. Mikilvægt er að orðakennslan sé markviss og kerfisbundin, að skipulag hennar myndi stíganda og hafi bæði áhrif á orðaforða og hæfni til þess að vinna með orð.
Það þýðir að nemendur þurfa að læra aðferðir til þess að brjóta orð og texta til mergjar.
Orðakennslan þarf að vera samhengisrík og því er best að skipuleggja hana í samhengi við námsefni í námsgreinum grunnskólans.
Leggja ætti áherslu á mikilvægan orðaforða.
Það eru að jafnaði a) blæbrigðaríkur almennur orðaforði sem gengur þvert á námsgreinar og nýtist því víða og b) mikilvæg hugtök í ólíkum námsgreinum.
Þessi lagskipti orðaforði er oft nefndur námsorðaforði, almennur (general) og sértækur (domain specific) námsorðaforði.
Jafnframt er mikilvægt að orðakennslan sé fjölbreytileg: bein kennsla, óbein kennsla, hæfniaðferðir, margmiðlunaraðferðir og tengingaraðferðir.