Skóli án aðgreiningar
Í aðalnámskrá grunnskóla segir: „Kennsla beinist að því að hjálpa nemendum að tileinka sér þekkingu, leikni og jákvætt viðhorf og öðlast þannig þá hæfni sem stefnt er að í menntun. Í skóla án aðgreiningar á að ríkja fjölbreytni í vinnubrögðum og kennsluaðferðum. Kennarar bera faglega ábyrgð á að velja árangursríkustu leiðirnar til að ná sem bestum árangri í samræmi við hæfniviðmið sem stefnt er að hverju sinni. Við val á kennsluaðferðum og vinnubrögðum ber að taka tillit til aldurs, þroska og getu nemenda sem í hlut eiga og eðlis viðfangsefnisins. Vönduð kennsla, sem lagar sig að þörfum og stöðu einstakra nemenda í skóla án aðgreiningar, eykur líkur á árangri (bls. 46).“
„Val á kennsluaðferðum og skipulag skólastarfs verður að miðast við þá skyldu grunnskóla að sjá hverjum nemanda fyrir bestu tækifærum til náms og þroska. Kennslan verður að taka mið af þörfum og reynslu einstakra nemenda og efla með nemendum áhuga og vinnugleði. Kennsluhættir skulu taka mið af jafnrétti og jafnræði (bls. 46–47).“
Rannsókn á innleiðingu Orðs af orði í 4. bekk í fjórum bekkjardeildum leiddi í ljós aukinn orðaforða nemenda í lok innleiðingar án tillits til stöðu þeirra við upphaf innleiðingarinnar (Guðmundur Engilbertsson, 2010). Það bendir til að Orð af orði henti vel öllum nemendum. http://hdl.handle.net/1946/5890
Meistaranemi sem rýndi í hvernig best mætti koma til móts við nemendahóp sinn og efla læsi hans með því að nota Orð af orði kennslufræðina og hugsjón um skóla án aðgreiningar skrifaði eftirfarandi í ágrip meistaraprófsritgerðar sinnar: „Helstu niðurstöður voru að með því að innleiða og kenna eftir aðferðum Orðs af orði breyttust kennsluhættir mínir; ég varð sátt við þær aðferðir sem ég tileinkaði mér og áttaði mig á mikilvægi þess að kenna eftir markmiðum í stað námsbóka. Nemendur öðluðust verkfæri til að efla læsi sem þeir nýttu sér til að vinna með og skilja innihald texta. Í ljós kom hversu vel menntastefnan og þróunarverkefnið héldust í hendur og hve vel þessar aðferðir nýttust til að koma til móts við alla nemendur á þeirra forsendum.“ (Hrefna Ósk Þórsdóttir, 2016). http://hdl.handle.net/1946/26028
Meistaranemi sem rýndi í aðferðir til að efla orðaforða nemenda af erlendum uppruna og beitti kennsluinngripum til þess skrifaði um bættan árangur þeirra: „Það bendir til þess að þær kennsluaðferðir sem notast var við hafi gert það að verkum að tilætlaður árangur náðist. Þær kennsluaðferðir sem notast var við eru hluti af kennslufræðinni Orði af orði sem byggir á því að efla læsi, orðaforða og almennan námsárangur barna (Katrín Júlía Pálmadóttir, 2017).
Grunnþættir menntunar
Læsi
Markmið kennslufræðinnar eru m.a. að efla orðaforða og orðvitund, lesskilning, námsvitund og námsárangur. Aðferðirnar styðja mjög vel við læsi og ekki leikur vafi á því að flestir skólanna sem nota kennslufræðina hafa eflingu læsis ofarlega í huga.
Lýðræði og mannréttindi
Aukið vald á máli, aukið sjálfstraust til að miðla hugsun sinni og virkari þátttaka í umræðu og samræðu við aðra eru þættir sem geta stuðlað að því að nemendur verði virkari þátttakendur í lýðræði.
Jafnrétti
Erlendar rannsóknir hafa sýnt mikinn mun á orðaforða, námsárangri og velferð eftir bakgrunni eða félags- og efnahagslegum aðstæðum. Börn sem alast upp við erfiðar aðstæður eiga oft fyrir höndum þrautagöngu á leið til læsis. Fræðimenn hafa því talið mjög aðkallandi að jafna stöðu nemenda með markvissri lestrar-, lesskilnings- og tungumálakennslu. Talið er að það stuðli að meira jafnrétti fyrir nemendur með ólíkan bakgrunn. Kennarar í Orði af orði hafa sagt að nemendur sýni vinnubrögðum í kennslufræðinni mikinn áhuga, að sumar aðferðanna henti drengjum mjög vel, að sumar aðferðanna virki jafnvel eins og segull fyrir nemendur með ofvirkni og að nemendur séu virkari og meira skapandi í vinnu þar sem aðferðir í verkefninu eru notaðar í stað annarra og "hefðbundnari" vinnubragða. Sérkennarar og nýbúakennarar hafa sagt að aðferðir í Orði af orði nýtist vel í kennslu og komi vel til móts við stöðu og þarfir nemenda. Í rannsókn á afmörkuðum hluta Orðs af orði kennslufræðinnar sýndu niðurstöður að nemendur sem tóku þátt í verkefninu bættu stöðu sína á stöðluðu orðaforðaprófi burtséð frá kyni eða upphafsárangri. Álykta má af ofangreindum forsendum að Orð af orði geti vel stutt við jafnrétti.
Sjálfbærni
Áhersla er lögð á stuðning í formi sýnikennslu til sjálfstæðis. Að efla námsvitund og -tækni stuðlar að sjálfbærni því nemendur verða færari í að brjóta námsefni til mergjar á sjálfstæðan hátt.
Heilbrigði og velferð
Aukinn orðaforði og vald á máli getur eflt leikni nemenda í samskiptum og námi. Líklegt er að það auki við sjálfstraust og stuðli að góðri sjálfsmynd og því er auðvelt að tengja Orð af orði við heilbrigði og velferð. Skólapúlsinn sem mælir viðhorf nemenda til þátta í skólastarfi mælir m.a. viðhorf til lesturs og sýna mælingar að ánægja nemenda af lestri eykst verulega í skóla sem notar Orði af orði kennslufræðina. Bókaútlán aukast verulega, jafnvel tvöfaldast eða þrefaldast. Færa má rök fyrir því að aukinn lestur og aukin ánægja með jafn mikilvægan þátt og lestur geti aukið heilbrigði og velferð.
Sköpun
Í Orði af orði er unnið á skapandi hátt með orð, hugtök og efnivið. Sýnileg, myndræn og rökleg framsetning afurða úr námsvinnunni er höfð að leiðarljósi. Unnið er með orðaforða á skapandi hátt, s.s. með umræðu, orðavinnu, ritun og nýyrðasmíði. Námsferli í Orði af orði er skipt í þrjú stig þar sem efni er kynnt, skoðað og sett í samhengi (fyrsta stig), sundurgreint, rannsakað og krufið (annað stig) og endurbirt eða enduruppbyggt (þriðja stig). Hvatt er til greinandi og skapandi endurbirtingar sem sýni gott vald nemenda á efninu. Nýyrðasmíð er hluti af orða- og orðhlutavinnu. Orð af orði tengist því mjög vel sköpun.