KVL
KVL eða Kann, Vil vita, hef Lært (e. KWL, Know, Want to know, Learned) er aðferð sem nýtist mjög vel í námi og er fyrirtaks leið til að tengja saman forþekkingu nemenda og nýtt nám - að kalla fram úr minni og skrá forþekkingu, setja sér og skrá markmið um frekari öflun þekkingar, skrá svo afrakstur að námi loknu og horfa á ferlið í heild.
Ferlið er gjarnan þannig að byrjað er á að ræða um efni eða orð og tiltaka allt sem nemendur vita eða kunna um það. Það er gjarnan skráð á vinnublað sem er þrískipt, þ.e. í K-V-L dálka, í K-dálkinn. Næsta skref felur í sér að ræða um hvað nemendur vilja vita meira um efnið og skrá það í V-dálkinn. Þar með hafa nemendur sett sér markmið í náminu. Þeir afla sér svo frekari þekkingar og skrá hana niður í L-dálkinn.
Mikilvægt er að ígrunda vel vinnublaðið, færa t.d. ekki allt inn sem nemendum dettur í hug heldur forgangsraða - taka saman þau atriði sem þeim þykja mikilvægust. Í lokin ættu nemendur svo að gera upp - skoða það sem þeir skráðu í K-dálkinn og leiðrétta ef þar voru efnislegar villur, skoða hvort þeir hafi náð markmiðum sínum (V), og taka saman allt það sem þeir vissu fyrir og það sem þeir lærðu.
Nokkur dæmi um KVL vinnu
Hér fyrir neðan er dæmi um KVL vinnublað lítils hóps nemenda í 6.–7. bekk sem vinna að þemanu lífríki í fersku vatni. Eins og sést á myndinni vissu nemendur fyrir ýmislegt um efnið og vildu auk þess vita ýmislegt fleira um það. Námið hefur einnig skilað þeim nýrri þekkingu.
Aðferðin nýtist vel á öllum stigum líkans Orðs af orði en einkum í upphafi á fyrsta stigi og í lokin á þriðja stigi líkansins. Í kjölfarið mætti ræða efnið, setja það upp í krossglímu, kortleggja það eða skrifa um það. Ekki er ólíklegt að nemendur þurfi einnig að leita skýringar á merkingu orða og hugtaka og jafnvel setja efnið í samhengi við annað efni. Slík endurbirting og úrvinnsla stuðlar að virkri þekkingu.
Aðferðin er vel þekkt og má m.a. gúggla og skoða á YouTube. Ágæta lýsingu á KVL má finna á læsisvef MMS.