Hríseyjarskóli
Hagnýtar upplýsingar um val nemenda
Þegar nemandi velur sér valgrein er mikilvægt að hann velti öllum möguleikum vel fyrir sér og ræði hugmyndir sínar við foreldra eða forrráðamenn. Valið á að byggja á áhuga og þörfum hvers og eins en ekki því hvert félagarnir stefna. Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar og kröfur um ástundun og árangur jafnmiklar og í öðrum greinum.
Hver valgrein er kennd tvær kennslustundir á viku. Nemandi velur sér valgrein fyrir ½ vetur í senn. Oft er sama valgrein í boði fyrir og eftir áramót og er nemendum þá frjálst að velja sömu valgreinina fyrir og eftir áramót ef þeir kjósa það.
Ekki er víst að hægt verði að verða við öllum óskum nemenda um valgrein. Greinar geta fallið niður vegna lítillar þátttöku eða annarra ófyrirséðra orsaka. Einnig getur komið fyrir að fleiri sækja í greinar en hægt er að koma að. Því þurfa nemendur að merkja við sex valgreinar á valblaðinu fyrir áramót og sex valgreinar eftir áramót. Þeir merkja nr 1 við þá valgrein sem þeir hafa mestan áhuga fyrir, nr. 2 þá sem þá langar næst mest í o.s.frv.
Hver nemandi á unglingastigi þarf að skila 37 kennslustundum á viku. Nemendur í 8. bekk eru með 33 kest. í kjarna, þeir stunda því nám tveimur valgreinum. Nemendur í 9. og 10. bekk eru með 29 kest. í kjarna og stunda nám í fjórum valgreinum.
Samvalsgreinar eru kenndar í grunnskólum bæjarins og fleiri stöðum. Gert er ráð fyrir að nemendur nýti sér strætisvagnakerfi til að koma sér á milli staða.
Nemendur eiga þess kost að fá félagsstarf eða nám utan skólans metið sem valgrein. Að hausti þarf að skila inn staðfestingu frá þjálfara/kennara/umsjónaraðila og foreldri/forrráðamanni á þar til gerðu eyðublaði frá skólanum. Að vori mun skóli óska eftir upplýsingum um ástundun nemandans. Nemendur og foreldrar bera ábyrgð á ástundun í metnu vali. Athugið að starfsemi utan skólans má að hámarki meta sem fjórar kennslustundir á viku. Foreldrar bera allan kostnað af tómstundastarfi sem óskað er eftir að fá metið með þessum hætti. Fái nemandi fjarnám við framhaldsskóla metið samsvarar tveggja eininga áfangi einni valgrein.
Nemendum og foreldrum/forráðamönnum er velkomið að hafa samband við Þórunni skólastjóra (thorunna@akureyri.is) , sími 466-1763, ef eitthvað er óljóst.
Valinu þarf að skila inn í síðasta lagi þriðjudaginn 23. maí 2023.