Brekkuskóli
Upplýsingar um val nemenda
Skólaárið 2023 – 2024 verður boðið upp á fjölbreytt úrval valgreina og von okkar er sú að allir geti fundið sér áhugaverðar og spennandi greinar. Það er mikilvægt að nemendur ræði hugmyndir sínar við foreldra eða forráðamenn, velji eftir eigin sannfæringu og séu sjálfstæðir í því sem þeir velja.
Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.
Flestar greinar eru opnar fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk en þó eru nokkrar einungis fyrir 9. og 10. bekk. Vinsamlegast hafið það hugfast þegar þið skoðið hvað er í boði.
Hver grein er kennd tvær kennslustundir á viku. Nemandi velur sér grein fyrir ½ vetur í senn. Oft er sama valgrein í boði fyrir og eftir áramót og er nemendum þá frjálst að velja sömu greinina fyrir og eftir áramót ef þeir kjósa það.
Hver nemandi í 8. – 10. bekk þarf að skila 37 kennslustundum á viku.
Í 8. bekk eru 6 kennslustundir af þessum 37 kenndar í valgreinum eða 3 valgreinar
Í 9. og 10. bekk eru 8 kennslustundir af þessum 37 kenndar í valgreinum eða 4 valgreinar
Ekki er víst að hægt verði að verða við öllum óskum nemenda um valgrein. Greinar geta fallið niður vegna lítillar þátttöku eða annarra ófyrirséðra ástæðna. Einnig getur komið fyrir að fleiri sækja í greinar en hægt er að koma að. Því þurfa nemendur að merkja við sex valgreinar á valblaðinu fyrir áramót og sex valgreinar eftir áramót. Þeir merkja nr. 1 við þá valgrein sem þeir hafa mestan áhuga fyrir, nr. 2 þá sem þá langar næst mest í o.s.frv.
Samvalsgreinar eru þær valgreinar kallaðar sem eru kenndar sameiginlega fyrir nemendur úr öllum skólum bæjarins víðsvegar um bæinn. Gert er ráð fyrir að nemendur nýti sér strætisvagna til að koma sér á milli staða.
Eftir fyrstu 1-2 vikurnar í valgrein getur verið mögulegt að skipta um grein en þó er slíkt alltaf háð aðstæðum í hverju tilviki fyrir sig. Eftir þann tíma er ekki hægt að skipta milli greina.
Nemendur eiga kost á að fá nám við sérskóla metið sem og ýmiskonar félags- og/eða íþróttaiðkun eða þjálfun:
Einfalt metið val samsvarar tómstundastarfi 1-5 klst. á viku.
Tvöfalt metið val samsvarar iðkun frá og með 5 klst. á viku í einni íþrótt/félagsstarfi eða þátttaka í tveimur aðskildum íþróttum/félagsstarfi.
Einnig geta nemendur fengið fjarnám við framhaldsskóla metið.
Athugið að metið val má að hámarki koma í stað 4 kest. á viku.
Til staðfestingar þátttöku í metnu vali þarf að skila staðfestingu á ástundun í sept/okt á þar til gerðu eyðublaði.
Nemendur og foreldrar bera fulla ábyrgð á iðkun í metnu vali og skilum á staðfestingu til að starfið fáist metið. Ef breyting verður á, eða nemendur hætta að iðka þá tómstund sem metin er ber að tilkynna það strax til skóla til að hægt sé að bæta inn valgrein strax.
Foreldrar bera allan kostnað af tómstundastarfi sem óskað er eftir að fá metið með þessum hætti.
Munið að velja fyrir báðar annir!!
Valinu þarf að skila inn í síðasta lagi þriðjudaginn 23. maí 2023.
Ef einhverjar spurningar vakna þá vinsamlegast hafið samband við Aðalheiði deildarstjóra (heidab@akmennt.is) eða í síma skólans 414-7900.
Innanskólaval
Bóknámsval
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn, Vorönn
Mánudagur, Þriðjudagur
Markmið: Nemendur í þessari valgrein þurfa að geta unnið sjálfstætt og borið ábyrgð á námi sínu. Nemendur hafa aðgang að greinakennurum og geta leitað til þeirra við úrlausn einstakra verkefna. Í þessari grein er t.d. tilvalið að fara betur í námsefni sem hefur reynst erfitt, gera heimadæmi eða moodle verkefni, nýta tímann til lesturs o.fl.
Námsmat byggist á ástundun og frammistöðu; lokið/ólokið.
Borðspil
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn, Vorönn
Miðvikudagur og samkomulag við hópa
Markmið:
Að nemendur kynnist fjölbreyttum spilum.
Að nemendur fari í hlutverk og tengi við persónur í spilum.
Lýsing á greininni: Kynning á spunaspilum eins og Drekum og dýflissum o.fl. Spilarar skapa persónurnar eftir settum reglum og nota ímyndunaraflið til að stýra þeim í gegnum spil - innan marka reglnanna. Byggist á samskiptum milli spilara. Kynning á fleiri borðspilum.
Námsmat: Ástundun og virkni í tímum.
Fatahönnun
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn, Vorönn
Fimmtudagur
Markmið: Að nemendur læri að nota saumavélina rétt, teikna upp og sníða flík eftir sniði.
Kennsluefni og aðferðir: Nemendur byrja á að rifja upp saumavélakunnáttu og sauma nokkrar prufur. Nemendur velja svo einfalda flík til að breyta, en því næst hanna, teikna, sníða og sauma sér flík að eigin vali í samráði við kennarann.
Námsmat: Símat.
Kennt verður í þrjár kennslustundir í senn í stað tveggja og því lýkur greininni fyrr sem því nemur.
Býr skáld í þér?
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn,
Mánudagur
Valgrein fyrir þau sem finnst gaman að semja ljóð, sögur og alls konar texta. Nemendur kynnast ólíkum textastílum og semja texta af ýmsu tagi.
Markmið er að nemendur:
Þjálfist í að skrifa skapandi texta.
Æfist í að veita endurgjöf og fá endurgjöf frá öðrum.
Fái tækifæri til að skapa eigin skáldverk, þróa þau og bæta.
Námsmat:
Þátttaka og vinnusemi í tímum.
Félagsmiðstöðvaval
Innanskólaval
Fyrir: 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Róesnborg
Haustönn, Vorönn
Fimmtudagur
Valgrein fyrir þá sem vilja skipuleggja starfið í sinni félagsmiðstöð (setja upp viðburði, auglýsa þá og stjórna þeim). Nemendur fá einnig fjölbreytta fræðslu og taka þátt í umræðum og hópefli/leikjum. Við viljum að nemendur í valinu verði virkir þátttakendur í sinni félagsmiðstöð. Nemendum í Félagsmiðstöðvavali býðst jafnframt að taka þátt á Landsmóti Samfés.
Fiðringur
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn og vorönn
Föstudagur
Fyrir áramót:
Nemendur sem velja greinina fyrir áramót fá að kynnast leiklist, leikjum, spuna og söng. Nemendur þjálfast í að fara á svið og koma fram. Athugið að þessi hluti Fiðrings tengist ekki hæfileikakeppninni eftir áramót og því hægt að velja þessa grein þótt svo að ekki sé áhugi á að taka þátt í sýningu.
Eftir áramót:
Nemendur sem velja greinina eftir áramót skipuleggja og semja atriði fyrir hæfileikakeppni grunnskólanna á Akureyri sem ber heitið Fiðringur og er náfrændi Skrekks í Reykjavík og Skjálftans á Suðurlandi. Þetta er hæfileikakeppni þar sem 8. 9. og 10. bekkir fá að taka þátt. Í þessu felst undirbúningur og æfingar fyrir lokasýningu í Hofi að vori, nemendum gefst tækifæri til að hanna búninga, sviðsmynd, tónlist, dans og fleira.
Kennt á föstudögum á báðum önnum en eftir áramót gæti líka verið kennt á öðrum vikudögum og í lotum fyrir keppina.
Íþróttir
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn, Vorönn
Mánudagur, Fimmtudagur
Markmiðið er að gefa nemendum kost á aukinni hreyfingu og kynningu á sem flestum íþróttagreinum. Skemmtilegir íþróttatímar með fjölbreyttri þjálfun.
Námsmat byggist á ástundun og frammistöðu.
Listasmiðjur
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn, Vorönn
Þriðjudagur, Fimmtudagur
"Leirmótun, málverk og stop motion
Í þessum verkefnum er unnið með fjölbreyttar aðferðir og efni. Verkefnin eru hugsuð fyrir nemendur í 8-10 bekk og byggja á grundvallaratriðum sjónlista þar sem unnið er með tvívítt og þrívítt form, liti, áferð, ljós og skugga. Nemendur fá að velja sér eftirfarandi viðfangsefni:
Leirmótun
Markmið:
Að þjálfa og þroska huga og hendur nemenda til að tjá eigin hugmyndir, tilfinningar, þekkingu og reynslu í leirmótun bæði í þrí- og tvívídd.
Að geta fylgt hugmynd til endanlegs verks ,
Að þekkja fjölbreytni leirmótunar og notkunar glerungs.
Að geta nýtt sér mismunandi aðferðir/tækni til að móta (búa til) bolla, vasa og skálar úr leir.
Að búa til leirfígúrur; t.d. dýr, fólk, verur og að geta notað glerung.
Málverk
Markmið:
Að þjálfa og þroska huga og hendur nemenda til að tjá eigin hugmyndir, tilfinningar, þekkingu og reynslu í mismunandi aðferðum í málun.
Að geta fylgt hugmynd til enanlegs verks. Þekkja fjölbreytni í málaraaðferðum, málningu/efni.
Að geta nýtt sér litafræði í mismunandi málaratækni, vatnslitamálun, akrylmálun.
Að geta nota mismunandi pennslastærðir og tegundir.
Að geta skafað málningu með pallíettuhníf, að geta notað málninguna þunna eða þekjandi.
Að blanda litum umferð yfir umferð eða blautt í blautt.
Að lýsa og dekkja litina með öðrum litum eða hvítu og svörtu.
Stop motion
Í þessu verkefni læra nemendur að móta úr álpappír og pappamassa og nota app sem heitir Stop Motion Studio til að búa til hreyfimyndir og sögur. Verkefnið byggir á grundvallaratriðum sjónlista þar sem unnið er með tvívítt og þrívítt form, liti, áferð, ljós og skugga. Nemendur móta atburðarás eða sögu, velja sér persónur til að móta og fylgihluti ""props"" Sögupersónur eru síðan mótaðar í pappamassa. Lögð áhersla á að nemandinn öðlist færni í að útfæra hugmyndir sínar. Nemendur læra að móta í leir og forma með álpappír og pappamassa. Nemendur læra að nota algeng verkfæri sem tengjast leir auk þess sem þeir læra grundvallaratriði í mótun hvort sem það er að móta í leir eða pappamassa. Í þessu verkefni er lögð áhersla á sköpun og flæði og að nemendur læri að tjá sig með aðferðum lista. Nemendur læri að útfæra hugmynd sína frá teikningu eða skissu yfir í þrívítt form auk þess fá þeir þjálfun í að útskýra verkin sín fyrir samnemendum og kennurum. Nemendur fá einnig þjálfun í að nota appið Stop Motion studio og búa til stutt stop motion video.
Sjá hér: https://sites.google.com/view/namsefnimyndlist/fredrick-heimspekilegar-samr%C3%A6%C3%B0ur
Markmið:
Að vinna með mismunandi efni
Að vinna með mismunandi liti og áferð
Að útfæra tvívítt verk eða skissu í þrívítt form
Að sýna frumkvæði og þor, gera tilraunir í verkefninu
Að velja og beita viðeigandi aðferðum og tækni við mótun og gerð stop motion
Að fjalla um eigin verk og verk annara í virku samtali við aðra nemendur
Að búa til stuttmynd sem felur í sér leikmynd, lýsingu, sögu, tjáningu og persónusköpun
Að búa til stutt myndbönd með appinu Stop Motion Studio
Námsmat: Símat eftir hvert verkefni. Tekið verður mið af einbeitingu nemendans, tækni, hugmyndaflugi og sjálfstæði í vinnubrögðum. Engin próf, allt er verklegt.
Matur og bakstur
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn, Vorönn
Mánudagur, Þriðjudagur, Fimmtudagur
Markmið: Að auka þekkingu og leikni í heimilisstörfum, efla sjálfstæði, samstarfsvilja og samábyrgð. Kenna undirstöðuatriði næringar- og matvælafræði. Leggja áherslu á góðar umgengnisvenjur og borðsiði. Að vekja athygli nemenda á mikilvægi hreinlætis almennt.
Áhersla er tvíþætt, annarsvegar á matargerð og matarmenningu og hinsvegar á bakstur og mismunandi bakstursaðferðir s.s. þeytt, hrært og hnoðað deig. Ýmsu fræðilegu efni sem tengist matargerð og heimilishaldi er fléttað inn í verklegu tímana. Nemendur í valhópum taka að sér bakstur vegna skemmtana í tengslum við fjáraflanir nemenda og annarra viðburða á vegum skólans.
Námsefni: Matreiðslubækur, bakstursbækur og mikið af fræðsluefni um matargerð og fjölbreytt efni af netinu og úr ýmsum bókum.
Nýtt námsefni: Næring og lífshættir – heimilisfræði fyrir unglingastig.
Kennsluaðferðir: Einstaklingskennsla, hópkennsla og samvinnukennsla, fer eftir verkefnum hverju sinni.
Námsmat: Símat, byggt á vinnubrögðum, ástundun, áhuga, frumkvæði og virkni nemandans í tímum. Einnig er stuðst við sjálfsmat og jafningjamat.
Kennt verður í þrjár kennslustundir í senn í stað tveggja og því lýkur greininni fyrr á önninni sem því nemur.
Prjón, hekl og útsaumur
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn,
xxx
Í þessum verkefnum er unnið með ýmsar aðferðir og efni. Verkefnin eru hugsuð fyrir nemendur í 8-10 bekk og byggja á grundvallaratriðum í hekli, prjóni og útsaumi í kort. Kynnt eru tæki og efni sem unnið er með í handmenntum og nemendum er kennt að nota þau við vinnu. Þá eru kynntar grunnaðferðir í nokkrum undirstöðugreinum handmenntar svo sem prjóni, hekli og útsaumi.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum í prjóni og prjónlesi, hekli og útsaumi
ýmsum aðferðum við að ganga frá og meðhöndla hannyrðir
undirbúningsvinnu fyrir ákveðin verk
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota grunnaðferðir prjóns, hekls og útsaums
nýta sér mismunandi efni í vinnslu ýmissa hluta
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útfæra verkefni eftir skrifaðri jafnt sem teiknaðri vinnulýsingu
temja sér vönduð og öguð vinnubrögð
Námsmat
Símat þar sem tekið er mið af einbeitingu, tækni, hugmyndaflugi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Smíðar / Hönnun
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn, Vorönn
Fimmtudagur
Markmið: Hönnun og smíði er valfag þar sem nemendur öðlast þekkingu á því ferli sem hefst á því að fá hugmynd og endar með því að hún verður að veruleika.
Einnig verður farið yfir hagnýt atriði í undirstöðuatriðum trésmíði. Nemendur fá þjálfun í notkun ýmissa tréverkfæra og undir handleiðslu kennara smíða þeir lítið borð og skammel. Að lokum fá nemendur tækifæri til að hanna sinn eigin grip og smíða hann.
Námsmat: Nemendur verða metnir alla önnina út frá verkefnum og frammistöðu í tímum. Tekið verður mið af sjálfstæðum vinnubrögðum, dugnaði, frágangi og vandvirkni.
Yoga
Innanskólaval
Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk
Staðsetning: Brekkuskóli
Haustönn, Vorönn
Fimmtudagur
Meginmarkmið verkefnisins er að auka vitund og velferð nemenda í Brekkuskóla .
Kennslan byggir m.a. á núvitund, hugleiðslu, jóga og fleiri hagnýtum verkfærum til að auka vitund, finna frið og slökun og læra að veita tilfinningum sínum athygli og vinna með þær.
Jafnframt hefur kennslan það að markmiði að efla félagsfærni nemenda, auka skilning og þekkingu á eigin persónuleikastyrkleikum og þrautseigju.
Fjölmargar rannsóknir benda til tengsla núvitundar við aukna vellíðan og hefur m.a. komið fram að vitund og sátt, sem eru hluti núvitundar, geti ýtt undir aukna þrautseigju og að bjartsýni, lífsfylling og þolinmæði einstaklinga sem búa yfir þrautseigju leiði til aukinnar vellíðunnar. Seigla er einnig oft meiri hjá einstaklingum sem tileinka sér núvitund þar sem þeir helga sig síður niðurdrepandi hugsunum og áhyggjum og viðhalda frekar grósku hugarfari.