Naustaskóli

Hagnýtar upplýsingar um val nemenda

Þegar nemandi velur sér valgrein er mikilvægt að hann velti öllum möguleikum vel fyrir sér og ræði hugmyndir sínar við foreldra eða forrráðamenn.  Valið á að byggja á áhuga og þörfum hvers og eins en ekki því hvert félagarnir stefna.  Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar og kröfur um ástundun og árangur jafnmiklar og í öðrum greinum.  

Ekki er víst að hægt verði að verða við öllum óskum nemenda um valgrein.  Greinar geta fallið niður vegna lítillar þátttöku eða annarra ófyrirséðra orsaka.  Einnig getur komið fyrir að fleiri sækja í greinar en hægt er að koma að.

Hver nemandi á unglingastigi þarf að skila 37 kennslustundum á viku í skólanum. Því þurfa nemendur í 8. - 10. bekk að velja sér þrjár valgreinar en nemendur eru í 31 kennslustund í kjarnagreinum og velja sér 6 stundir í valgreinum. Hver valgrein er tvær kennslustundir á viku. Nemandi velur sér valgrein fyrir 1/2 vetur í senn. Oft er sama valgrein í boði fyrir og eftir áramót og er nemendum þá frjálst að velja sömu valgreinina fyrir og eftir áramót ef þeir kjósa það. Innanskólaval fer allt fram í skólanum en samvalsgreinar fara að litlum hluta fram í Naustaskóla en fara fram í öðrum grunnskólum bæjarins, VMA auk annarra staða. Ætlast er til að nemendur nýti sér strætóferðir til að komast á milli staða.

Nemendur eiga þess kost  að fá félagsstarf eða nám utan skólans metið sem valgrein. Að hausti þarf að skila inn staðfestingu frá þjálfara/kennara/umsjónaraðila og foreldri/forrráðamanni á þar til gerðu eyðublaði frá skólanum. Að vori mun skóli óska eftir upplýsingum um ástundun nemandans.  Nemendur og foreldrar bera ábyrgð á ástundun í metnu vali. Athugið að starfsemi utan skólans má að hámarki meta sem fjórar kennslustundir á viku. Foreldrar bera allan kostnað af tómstundastarfi sem óskað er eftir að fá metið með þessum hætti. Fái nemandi fjarnám við framhaldsskóla metið samsvarar tveggja eininga áfangi einni valgrein. 

Ef einhverjar spurningar vakna er ykkur velkomið að hafa samband við Margréti Rún deildarstjóra mrk@akmennt.is eða í síma 460-4103 og mun ég verða ykkur til aðstoðar eins og þarf.


Valinu þarf að skila inn í síðasta lagi föstudaginn 19. maí 2023.


Innanskólaval

Fiðringur 

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Sigurlaug

Vorönn - mið. kl. 13:10

Undirbúningur fyrir þátttöku í hæfileikakeppni grunnskóla Akureyrar. Ýmis störf í boði, hljóð, búningar, hár og framkoma eru meðal viðfangsefna valsins.


Árshátíðarval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Sigurlaug

Haustönn - mið kl. 13:10

Árshátíðarval er fyrir nemendur sem hafa áhuga á að taka þátt í undirbúningi og flutningi leiksýningar á árshátíðinni að vori. Það verður meðal annars farið í að velja/skrifa/útfæra handrit og persónur og eftir áramót verður áhersla á framkomu á sviði; leik, söng og dans eftir því sem við á. Nemendur fá tækifæri til að vera virkir þátttakendur í öllu ferlinu við undirbúning leiksýningar frá upphafi til enda og fá auk þess þjálfun í undirstöðuatriðum sviðsframkomu.


Myndmennt

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Halla

Haustönn - mán. kl. 13:20

Markmið: Að þjálfa og þroska nemendur til að tjá eigin hugmyndir, tilfinningar, þekkingu og reynslu í margskonar efnivið. Að geta fylgt hugmynd til endanlegs verks. Þekkja fjölbreytni (mynd-) listar.  Að nemendur nýti sér í eigin myndsköpun grunnþætti myndlistar. Nemendur útbúa sína skissubók sem þeir nýta óspart heima sem og í kennslustundum. Viðfangsefni verða eins fjölbreytt og nemendur eru margir. Farið verður í vettvangsferðir á listsýningar og ýmis skemmtileg verkefni unnin.  

Námsmat: Tekið verður mið af ábyrgð og sjálfstæði, samvinnu og samskiptum skapandi og gagnrýnni hugsun, þrautseigju í vinnubrögðum og tjáningu.

Hljómsveitarval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Magnús

Haustönn - þrið kl. 13:20

Í þessu vali verður boðið upp á samspil á hin ýmsu hljóðfæri.Æskilegt er að nemendur hafi grunnkunnáttu á eitt eða fleiri hljóðfæri. Einnig er þetta gott tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á söng eða raftónlist.

Lögð verður áhersla á hljóðfæraspil og geta nemendur mætt með sín hljóðfæri.

Tónlistin sem verður spiluð mun vera allt frá blús, klassísku rokki, 70’s 80’s og upp í nýmodernísk raf-autotune-popp.

Stefnt verður á að taka þátt og spila á hinum ýmsu skólaviðburðum og einnig á utan-skóla viðburðum.

Leir og sköpun

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Halla

Vorönn - mán. kl. 13:20

Markmið að nemendur kynnist leir, áhöldum og fyrstu stigum leirmótunar.

Nemendur byrja á einföldum aðferðum og verkefnum en þeir eiga síðan að geta byggt á fyrri reynslu og tekist á við flóknari verkefni. Með því að kunna skil á grunnatriðum leirmótunar verður sköpun verka í leir og jafnvel önnur efni greiðfærari. Litið er til sjálfstæðis í vinnubrögðum, frumkvæðis og samstarfshæfni.

Hugleiðsla og slökun

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Valdís

Vorönn - mið. kl. 13:10

Kenndar verða ýmsar aðferðir við hugleiðslu og slökun. Farið verður í mikilvægi öndunar og  hvað hún getur gert fyrir okkur ef við náum að tileinka okkur hana í daglegu lífi. VIð skoðum  sjálfsmyndina okkar og sjálfstraust, rýnum í neikvæðar og jákvæðar hugsanir, hvernig við getum flokkað þær og unnið úr þeim. Ólíkar tilfinningar sem við búum yfir, vináttuna og  þakklætið. 

Stærðfræði

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Ása

Haustönn og vorönn - fim. kl. 13:10

Valið er hugsað sem stuðningur í stærðfræði á unglingastigi og farið verður í grunnatriði stærðfræðinnar. Valgreinin er aðeins ætluð þeim sem hafa verulegan áhuga á að bæta stærðfræði kunnáttu sína og eru tilbúnir til leggja á sig talsverða vinnu til þess. 

Námsmat: Verkefni og vinnusemi í kennslustundum metin.

Heimilisfræði

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Haustönn, Vorönn - mán. og þrið. kl. 13:20 og mið. og fim. kl. 13:10

Helstu markmið eru að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð, auka virkni nemandans og áhuga fyrir  matargerð, auk þess þurfa nemendur að sýna samábyrgð og hæfni til að vinna með öðrum.  Áhersla er lögð á að æfa mismunandi matreiðslu og bakstursaðferðir. Reynt er að hafa  námsefnið sem fjölbreyttast og að byggja ofaná þann grunn sem nemendur hafa þegar fengið.  Leitast er við að flétta sem mest fræðilega þætti inn í verklegu tímana svo sem kvilla og  sjúkdóma sem tengjast mataræði, helstu dreifingarleiðir örvera, gæði og hollustu matarins,  næringu og fleira.  

Kennsluaðferðir: Hópastarf og samvinna. Nemendur vinna 2-3 saman að ákveðnu verkefni en  samvinna allra er fólgin í frágangi og ýmsum öðrum verkefnum. Kennari fer yfir verkefnin í  byrjun tímans og aðstoðar síðan nemendur eftir þörfum. 

Námsefni: Matreiðslubækur og ljósritað efni. 

Tauþrykk

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Valdís

Haustönn - fim. kl. 13:10

Nemendur læra mismunandi aðferðir við þrykk, eins og stimplun, stensla þrykk, ramma þrykk og tie dye litun. Nemendur fá að kynnast mismunandi efnum og áhöldum sem notuð eru við að þrykkja. Lögð er áhersla á að nemendur fái að þrykkja á mismunandi efnivið eins og tré, gler, leir og textílefni.

Námsmat: Virkni og vinnubrögð í tímum metin.

Fatasaumur

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Valdís

Vorönn - fim. kl. 13:10

Nemendur í fatasaum fá í samráði við kennara að velja sér verkefni eftir því hvar nemandinn  er staddur í textílnámi sínu. Nemendur geta t.d. saumað og hannað föt á sjálfan sig, föt á lítil  börn eða töskur og veski svo eitthvað sé nefnt. Mikil áhersla er lögð á að nemendur temji sér  vönduð vinnubrögð og nákvæmni.  

Námsmat: Virkni og vinnubrögð í tímum metin. 

Mannkynssaga 2.0

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Magnús

Vorönn - mán. kl. 13:20

Í þessu vali verður farið djúpt í sögu mannsins. Nemendur fá að velja sér viðfangsefni og hversu djúpt þeir sökkva sér í efnið. Efni sem er í boði er:

Kvikmyndaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Magnús

Haustönn - mán. kl. 13:20

Farið verður í að kynna okkur sögu kvikmynda, horfa á frægar bíómyndir og ræða saman og gera verkefni um kvikmyndir, gerð þeirra, kvikmyndatöku og aðrar áherslur.


Jóladagatalsnámskeið

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Haustönn - mið. kl. 13:10

Kennari: Valdís

Við vinnum og búum til aðventudagatal til að gleða einhvern með í desember. Við veljum okkur þema í dagatalið okkar og búum síðan til gjafirnar í dagatalið alveg frá 1. desember til 24. desember. Með því að klippa, mála, sauma, endurnýta og líma göldrum við fram fallegar gjafir sem gaman er að gefa. Við pökkum síðan inn fallegu gjöfunum sem við höfum búið til, skreytym og merkjum pakkana á fallegan hátt svo að dagatalið verður fallegt skraut á heimilinu á aðventunni. 

Félagsmiðstöðvaval

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Haustönn og vorönn - þrið. kl 13:20

Valgrein fyrir þá sem vilja skipuleggja starfið í sinni félagsmiðstöð, setja upp viðburði, auglýsa þá og stjórna þeim.  Nemendur fá einnig fjölbreytta fræðslu og taka þátt í umræðum og hópefli/leikjum. Lögð er áhersla á reynslunám, tómstundir, samvinnu og félagsmál. Mælst er til þess að nemendur í valinu séu virkir þátttakendur í sinni félagsmiðstöð.

Saga íþróttanna

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Björn

Haustönn og vorönn - mán. kl. 13:20

Fjallað verður um ýmsar íþróttir þar á meðal fótbolta, körfubolta og skák. Farið verður í að læra sögu íþróttanna, horfa á söguleg augnablik úr sögunni, leikgreining, reglur, saga og margt fleira. Val sem felur í sér fjölbreytt viðfangsefni. 

Ástfangin af lífinu

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Þórey

Haustönn - fim. kl. 13:30

Hver ertu þegar engin sér til.

Hér ætlum við að glugga í og lesa saman úr bók eftir Þorgrím Þráinsson sem heitir Verum ástfangin af lífinu. Vinnum verkefni upp úr bókinni.

Markmiðið er að styrkja sjálfsmyndina og finna möguleikan á að verða besta útgáfan af sjálfum sér.

Blak

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Þórey

Vorönn - fim. kl 13:30

Æfa okkur í blaki. Fara yfir grunnreglur og æfingar og spila blak á sem fjölbreyttastan máta.

Markmið: Efla kunnáttu og áhuga á blakíþróttinni. Tækifæri til aukinnar hreyfingar. Hafa gaman saman.


Bandý

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Magnús

Haustönn - fim. kl. 13:30

Í þessu vali verður spilað bandý. Allir geta verið með og er ekki nauðsynlegt að hafa fyrirfram frábæra kylfutækni eða úthald. Lögð verður áhersla á að nemandi fái kennslu í að skjóta og senda, hvernig á að hreyfa sig í 5 manna liði á vellinum og bara spila bandý. Fullt af bandý. Sem er gaman og verður gert mikið af. Þetta val er fullkomið fyrir íþróttakrakka því lítið er um meiðsli í þessari íþrótt en mikið um upphitun, hreyfingu og teygjur. Þetta val er fullkomið fyrir þá sem eru ekki á kafi í íþróttum því það er mikið um upphitun, hreyfingu og teygjur. Fullkomið fyrir alla sem sagt.

Bíómyndir, bækur og hlaðvörp

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Magnús

Vorönn - þrið. kl. 13:20

Áhersla verður lögð á menningarefni (bíómyndir, bækur og podcöst) sem snúa að mannkyninu, hegðun þess og af hverju við gerum það sem við gerum. 

Nemendur fá mikið að velja sér miðil og efni sjálfir fyrir utan tvö verkefni sem koma frá kennara og eru metin samfélagsfræði markmið upp úr þeim.

Upp úr því efni sem nemendur velja sér þarf að skila skýrslu eða vinna annað verkefni upp úr því. Um er að ræða hnitmiðuð verkefni sem fá mann til að hugsa dýpra og ekki taka öllu sem maður sér, heyrir eða les sem sjálfsögðum hlut.

Eitt skref í einu í átt að jafnvægi

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Katý

Haustönn og vorönn - fim. kl. 13:10

Í þessu vali verða ýmsar leiðir skoðaðar til að takast á við daglegt líf. Rætt verður um hvaða áhrif hugsanir hafa á líðan og hvernig þú getur haft stjórn á eigin hugsunum.  Kennd núvitund, muninn á því að vera og gera. Sjálfstjórn og jákvæðar tilfinningar.

Kennsla: Fræðsla og umræður,  verkefni og æfingar.  Skoðum ýmsar leiðir til að takast á við daglegt líf, hvað getur valdið streitu og aðferðir til að stjórna spennu og auka vellíðan.

Dæmi: Skoða og vinna með styrkleika og hugarfar vaxtar. Rætt verður hvað  áhrif hugsanir hafa á eigin líðan og hvernig þú getur haft stjórn á eigin hugsunum. Setja sér raunhæf markmið og fylgja þeim eftir. Núvitund. Fjallað um muninn á því að vera og gera og samkennd í eigin garð.

Æfingar – Verkefni og umræður.   Leiðarbók 

Mat í upphafi og lok námskeiðs.

Hreysti

Fyrir: 8. bekk, 9. bekk, 10. bekk

Staðsetning: Naustaskóli

Kennari: Björn

Haustönn og vorönn - mið. kl. 13:10

Í upphafi verður farið í almenn grunnatriði í hreyfingu og réttri líkamsbreytingu. Einnig verður farið í að þjálfa upp almennan styrk, þol og snerpu. Leitast verður við að kenna nýjar hreyfingar/æfingar og læra nemendur að búa til sína eigin æfingu og hvaða vöðvahópa er unnið með hverju sinni.