Inna

Hitt og þetta í Innu

Að skoða og skilja námsferilinn sinn í Innu

Hér eru leiðbeiningar um það hvernig nemendur finna námsferilinn sinn í Innu en ekki síður hvernig á að lesa úr öllum þessum upplýsingum.  Einning hvað það eru margar einingar í kjarna, brautarkjarna, brautarvali og frjálsu vali, sem og hlutfalli eininga á þrepi.

Tenglar sem bent er á í myndbandinu eru:

Auk þess er hér listi yfir áfangaframboð næstu annir. 

Hvað eru athugasemdir og hvar finn ég þær?

Athugasemdir eru færðar í Innu fjórum sinnum á önn, tvisvar fyrir miðannarmat og tvisvar eftir. Þetta er gert fyrir hvern áfanga. Í athugasemdunum kemur fram hvernig nemandi stendur í náminu, yfirleitt er sett inn hve mörgum verkefnum hefur verið skilað, stundum skrifleg umsögn og stundum einkunn. Ef ástæða þykir hefur umsjónarkennari eða námsráðgjafi samband við nemanda í framhaldinu.

Á skóladagatalinu (linkur á það nýjasta er á vef MTR, mtr.is) sést hvenær athugasemdir eru gerðar