Kannabis

Hvernig lítur kannabis út?

Útlit kannabisafurða er mismunandi. Kannabisplantan er 4-5 metrar á hæð. Blöð plöntunnar eru stór, oft 5-7 fingruð, sagtennt og með löngum stilk. Þau eru með smá og grænleit blóm sem skipa sér í blaðaxlir. Hassið er mulin, sigtuð, pressuð og stundum hreinsuð kvoða unnin úr kannabisplöntum. Gras er búið til með blómasprotum og laufi kannabisplantna. Hassolía er búin til með því að láta lífræn leysiefni draga kannabínóíða úr hassi eða kannabisplöntum. Ganja er búið til þannig að blómsprotum og smá laufblöðin.

Kannabis í líkamanum

Kannabis getur greinst í blóði og þvagi í um það bil sex vikur eftir notkun. Því er ekki æskilegt að keyra í sex vikur eftir að þú reykir kannabis annars getur þú misst bílprófið.

Afleiðingar

Veldur auknum hjartslætti, hækkar blóðþrýsting, veldur sýkingum og sjúkdómum í öndunarfærum, veldur bælingu á ónæmiskerfinu, eykur hættu á krabbameini í munni, kjálka, tungu og lungum, dregur úr mjög úr framleiðslu testósteróns, getur valdið drepi í eggjabúsfrumum og veldur rýrnun á eggjastokkum og eggjaleiðurum. Miklar kannabisreykingar leiða oft til þess að fólk fær persónuleikaröskun og að undirliggjandi geðklofi komi fram. Einnig geta kannabisreykingar á táningsaldri aukið líkur á þunglyndi á fullorðinsárum um 40%

Markaðssetning og vinsældir

Vinsælustu kannabisafurðirnar í vesturlöndum eru hass, marjúana/gras og hassolía. Það er samt líka til sinsemilla, ganja og THC. Kannabis er oft selt á Facebook og á götunni. 1 gramm af grasi kostar 2350 kr. og 1 gramm af hassi kostar 2400 kr. Verð er samt oft mismunandi eftir landshlutum.

Efnasamsetning

Kannabisefni eru ekki hrein efnablanda. Vímuefnin úr kannabisplöntunni eru búin til úr 400 efnum. 61 þeirra finnast ekki neins staðar á jörðinni nema í kannabisplöntunni. Þegar kannabis er reykt myndast 2000 efni sem fara inn í líkamann.


HVernig er það að vera í kannabisvímu?

Kannabisvíma getur einnig valdið hræðslu og neytandanum getur fundist eins og aðrir ætli að ráðast á hann, ofsóknarbrjálæði t.d eins og það sé kóbraslanga á hendinni sinni og skera hana af vegna brjálæði og skelfingu. Allt sem þú snertir fer að titra og tíminn verður mikið lengur að líða, þú færð háskerpu sjón sem líkist draum, manni finnst allt vera fyndið, hjartað slær á milljón, líkaminn er að eins lengur.