Grænfáninn í GSnb

Grænfáninn

Skólar á grænni grein (Eco-Schools) eru alþjóðlegt verkefni sem menntar milljónir nemenda í 67 löndum víðsvegar um heim í sjálfbærni og umhverfisvernd. Verkefnið byggir á lýðræðismenntun og getu til aðgerða.

Skólar á grænni grein fylgja sjö skrefa ferli sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Ef skólinn nær markmiðum sínum fær hann að flagga Grænfánanum til tveggja ára og fæst sú viðurkenning endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi.

Verkefnið hefur víðtæk áhrif og taka skólar ábyrga afstöðu í málum sem snerta umhverfið. Með því að innleiða raunhæfar aðgerðir og vinna á markvissan hátt að sjálfbærni í skólanum sýnir reynslan að skólar geta sparað talsvert í rekstri.

Tekið af heimasíðu verkefnisins, https://graenfaninn.landvernd.is/

Grunnskóli Snæfellsbæjar er með þrjár starfstöðvar, þ.e. á Hellisssandi, í Ólafsvík og að Lýsu. Aðstæður og hefðir hafa komið því verkalgi á að Lýsuhólsskóli er sjáfstæð eining en meira samstarf og samfella í starfi starfstöðvana á Hellissandi og í Ólafsvík.

Lýsuhólsskóli hefur verið virkur þátttakandi í verkefninu Skólar á grænni grein frá því að til þess var stofnað á Íslandi árið 2001. Fékk fyrst fána 2003 og hefur flaggað Grænfána átta sinnum. Starfstöðvarnar norðan Heiðar hafa verið samstíga í grænfána verkefninu frá 2006 og flögguðu fyrst fána 23. maí 2008.