Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Áhöld:
notað einfaldar aðferðir og beitt viðeigandi áhöldum,
Nemendur þjálfast í að klippa textílefni, nota títuprjóna, þræða nál og sauma nokkur útsaumsspor.
Efnisval:
unnið úr nokkrum gerðum textílefna,
Unnið með filt, perlugarn, tróð, java og garn.
Útfærsla:
unnið eftir einföldum leiðbeiningum,
Leiðbeiningar frá kennara.
Vinnuvernd:
beitt líkamanum rétt við vinnu sína.
Leiðbeiningar frá kennara.
Hugmyndavinna:
tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu,
Nemendur vinna með skissubók og halda þar utan um skissur sem unnið er með fyrir verkefni vetrarins.
Sköpun og skreyting:
skreytt textílvinnu á einfaldan og skapandi hátt,
Teikna upp verkefni sitt, velja liti og skreyta eftir eigin smekk.
Hugtök:
notað nokkur hugtök sem tengjast greininni,
Læra um heiti áhalda og aðferða sem unnið er með í greininni.
Miðlar:
nýtt ýmsa miðla til að afla einfaldra hugmynda.
Á ekki við.
Efnisfræði:
fjallað um íslenskt hráefni og unnið með það á einfaldan hátt,
Gert í 1.bekk og aftur í 4. bekk.
Merkingar:
gert grein fyrir nokkrum tegundum textílefna,
Læra heiti þeirra textílefna sem unnið er með.
Endurnýting:
notað endurunnin efni í textílvinnu,
Gert í 3. og 4. bekk.
Menning:
greint nokkur einkenni íslensks handverks í textílvinnu.
Læra undirstöðuatriði í vinnu með textílefni.