Megintilgangur náms og kennslu í lykilhæfni er að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda, búa þau undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og að þeir öðlist getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Lykilhæfni snýr að nemandanum sjálfum, er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans og tengist öllum námssviðum. Góð lykilhæfni gerir einstaklingum kleift að læra við ólíkar aðstæður, takast á við breytingar, vinna í samfélagi með öðru fólki og bregðast við á þann hátt sem hentar þeim sjálfum til uppbyggingar og farsæls lífs. Lykilhæfni er hæfni fyrir borgara framtíðarinnar, einstaklinga sem þurfa að vera tilbúnir að læra allt lífið (Gunnar E. Finnbogason, 2016).
Áhöld:
notað einfaldar aðferðir og beitt viðeigandi áhöldum,
Nemendur þjálfast í að klippa textílefni, þræða nál og nota títuprjóna.
Efnisval:
unnið úr nokkrum gerðum textílefna,
Unnið með filtefni, perlugarn, tróð, tölur og perlur. Auk þess að vinna verkefni úr ullarkembu.
Útfærsla:
unnið eftir einföldum leiðbeiningum,
Leiðbeiningar frá kennara.
Vinnuvernd:
beitt líkamanum rétt við vinnu sína.
Leiðbeiningar frá kennara.
Hugmyndavinna:
tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu,
Byrjar í 2.bekk.
Sköpun og skreyting:
skreytt textílvinnu á einfaldan og skapandi hátt,
Velja liti á verkefnið sitt og raða saman. Velja tölur fyrir augu og skreyta þæfingarverkefni með útsaumi og/eða perlum.
Hugtök:
notað nokkur hugtök sem tengjast greininni,
Læra um heiti áhalda og aðferða í greininni.
Miðlar:
nýtt ýmsa miðla til að afla einfaldra hugmynda.
Á ekki við.
Efnisfræði:
fjallað um íslenskt hráefni og unnið með það á einfaldan hátt,
Vinna verkefni úr ullarkembu og taka þátt í umræðum um íslensku ullina.
Merkingar:
gert grein fyrir nokkrum tegundum textílefna,
Ekki unnið markvisst með það, kemur á seinni stigum.
Endurnýting:
notað endurunnin efni í textílvinnu,
Á ekki við.
Menning:
greint nokkur einkenni íslensks handverks í textílvinnu.
Læra undirstöðuatriði í vinnu með textílefni.