Keilir
3. bekkur
3. bekkur
Vinnuaðferðir :
Vefnaður: Nemandi lærir grunnhandtök og hugtök í vefnaði.
Aðalvinnuaðferðin í 3.bekk er s.s. vefnaður, en aðrar vinnuaðferðir mun kennari velja með nemanda, t.d. í valverkefnum.
Kennsluaðferðir ofl.:
Helstu kennsluaðferðir í textílmennt eru verkleg- og sýnikennsla. Lögð er áhersla á sögur, leiki, hringleiki og vísur sem tengjast texíl. Textílnmennt er kennd í 80 mín, í lotum þ.e. 11-12 skipti.
Verkefnin eru:
Sem sagt það er lögð áhersla á vefnað og hvernig efni er saumað saman í höndunum. Unnið er lítil einstaklings vefnaðarverkefni ( t.d. taska, armband, hálsmen os.frv.) og einnig samvinnu vefstykki (púði, motta eða veggteppi sem getur verið partur í að búa til góða hljóðvist í stofunni þeirr eða verið veggteppi til að leggjast upp t.d. að við lestur). Verkefnin eru unnin úr ýmsu hráefni og upprunni þeirra velt fyrir sér. Aðferðir við að búa til klæði/efni eru skoðuð. Spurningar eins og “Hvernig eru efni gerð?”, “Hvaða aðferð er notuð til að búa til gallabuxnaefnið eða jogginggallaefnið, og eru þau eins?”.
Valverkefni: Ef að tími og áhugi er fyrir hendi er rými fyrir auka- eða heimavinnu og þá er reynt að vinna út frá áhuga sem kviknar hjá nemendum.
Pinterest “Textíl í Hvassó” ( hugmyndabanki kennara og nemenda )
Röra og pinnavefnaður