Lóur
1. bekkur
1. bekkur
Vinnuaðferðir:
Þæfing: nemendur kynnast blautþæfingu og þurkarinn hjálpar okkur yfir efiðasta hjallinn í þæfingunni.
Þráðurinn þræddur, skreyting og snúran: nemandi lærir að vinda snúru, þræða þráð á grófa nál og sauma frjáls útsaumsspor.
Kennsluaðferðir ofl.
Helstu kennsluaðferðir í textílmennt eru verkleg- og sýnikennsla. Lögð er áhersla á sögur, leiki, hringleiki og vísur sem tengjast texíl.
Textílmennt er kennd í 80 mín. 1x í viku, í lotum. Fyrsta lotan er frá 22. ágúst - 13.janúar og seinni er 16. janúar- 2. júní
Verkefnin eru:
Þau vinna eitt til tvö verkefni úr ullarkembu og er hún aðalhráefni vetrarins. Ulllarkemban er þæfð ( e.t.v. með smá hjálp þurkarans og/eða nælonsokks) og er verkefnið e.t.v. skreytt með þeirra útsaum, perlum eða öðru.
Bandið/ garnið: Þau vinna grunnaðferðir eins og búa til snúruband (armband eða leikspotta) og kljást við bandið á ýmsan hátt.
Að lokum ef tími gefst eru unnin ýmis lítil aukaverkefni. t.d. læra að leika með snúruband sem „fuglafit“,(elsta leik mannsins).
Pinterest “Textíl í Hvassó” ( hugmyndabanki kennara og nemenda )
SNÚRUR UNDNAR Á ÞYRILSNÆLDUR ...FIGETSPINNER!
Þæfðar kúlur sem verða af ýmsu sem huganum hugnast!
Fuglafit