Vinnuaðferðir:
Hnýta hnúta: Nemendur læra að hnýta nokkra einfalda hnúta, rembihnút (tvöfaldanhnút), áttuhnút og svo að binda lykku.
Fingraprjón og fingrahekl: læra einfalt fingraprjón, jafnvel ´"tengifingraprjón", og ef til vill einnig að fingrahekla.
Spuni: prófa að búa til spotta og spinna band á mismunandi hátt.
Kennsluaðferðir ofl.
Helstu kennsluaðferðir í textílmennt eru verkleg- og sýnikennsla. Lögð er áhersla á sögur, leiki, hringleiki og vísur sem tengjast texíl. Textílnmennt er kennd í 80 mín, í lotum þ.e. 11-12 skipti.
Verkefnin eru:
Aðalefnið í 2.bekk Bandið/garnið: Þau læra grunnhugtök eins og þráður, þræða, snúru, snæri, spotti, garn og hnútur, rembihnútur og kljást við bandið um leið á ýmsan hátt. Í fyrsta verkefninu þeirra æfum við handtök tengd þessum grunnhugtökunum og verkefnið er að búa til óróa, draumafangar eða álíka skraut.
"Hverjir eru svo bestir að binda hnútana? ...eru það skátarnir, eða sjómenn eða 2.bekkur?" 😃
Nemendur læra að fingraprjóna og prjónið verður að því sem þau finna út með sjálfum sér, nemendum eða kennara, þá t.d. lítil bönd, armbönd, hálsmen, fígúru, hálsklút, púða o.s.frv. Ef til vill læra þau einnig að fingrahekla spotta og gera mismunandi „fuglafit“, elsta leik mannsins.
Þau læra að vinda snúru og tvinna saman tvo spotta þ.e. tvíband og meðfram því skoðum við kaðlaversmiðju (myndskeið). Gerum snúru með þyrilsnældur ( figetspinner). Síðan kembum við ull, þau fá að sjá rokk og hverning band er spunnið, þá bæði á halasnældu og rokk, og síðan prófa þau sjálf að nota frummynd halasnældu (stein og spítu) til að spinna spotta. Þá prófa þau að spinna einfaldan garnspotta/þráð úr kembu með halasnældu eða jafnvel bara með að nudda ullaþráðum saman (þæfa þráðinn), og þá að lokum er reynt að vinda hnykil upp úr garnspottanum/þræðinum. Þau nota síðan stærri snúrurnar í einhvern leik t.d. sem sippuband, eða tjaldgerð, bæði inni og úti (ef veður leyfir) eða nýta hann sem fugla fit eða hnykil bolta til að leika með ..."kisa er auðvita alltaf glöð að fá lítin hnykil".
Meðfram þessu verkefnum veltum við fyrir okkar “Hvað er hráefni?” (ull, bómull, hör og gerviefni) “Hvaðan fáum við hráefnið og hvernig er þráðurinn búin til úr því?” (spunninn, þæfður, heklaður?)
Pinterest “Textíl í Hvassó” ( hugmyndabanki kennara og nemenda )
Óróar - Draumafangarar
Tóvinnan ...ullin kemd
Bandið þæft /"spunnið"
Fingraprjónað og upprifjun snúrugerðar
Lítil aukaverkefni