Framleiðsluferils textíls
(Gervigreindar- mynd sem er röng á margan hátt, en textílkennari vinnur í því að leiðrétta hana, en hún fær að hanga hér inni þangað til lagfæringu er lokið)
Á hverju ári er lögð áherla á að læra nýja verkaðferð, og um leið er einnig rifjuð upp og þjálfuð áður lærð verkaðferð. Reynt er að styrkja og yrkja sköpunargáfuna í leik eða við notkun á þeim verkaðferðunum sem þau læra. Nemendur eru hvattir til að fara sínar eigin leiðir, en einnig er viðurkennt að það sér lærdómur í því að herma og reyna endurgera eitthvað sem aðrir hafa skapað áður. Með því að leggja áherslu á verkaðferðir frekar en verkefni, hafa nemendur meira frelsi til að vinna með eigin hugmyndir og vinna út frá sínu áhugasviði og hugaheimum.
Hvert ár er s.s. með áherslu á eina verkaðferð, sem jafnframt myndar eina heild og endurspeglar framleiðsluferil textíls, þ.e.a.s. hvernig textíll verður nokkur veginn til. Ferlið byrjar á hráefninu, sem þæft er saman ( 1. b. ) eða spunnið garn úr ( 2. b. ), sem síðan er ofið efni úr ( 3. b. ), eða prjónað úr því klæði ( 4. b. ). Og úr efnunum/klæðunum er síðan saumað, handsaumað eða vélsaumað ( 5. b. ) Svo að lokum er efnið oft skreytt, þá ýmist með litun, útsaum eða öðrum aðferðum beitt ( 6. b. ) . En innan textíls eru til fjöldinn allur af mismunandi verkaðferðum sem spretta út frá grunnaðferðum og eru þær sér á báti, eins og hekl ( 7. b. ) Stundum er þessum auka verkaðferðum fléttað inn í eins og í 5. bekk fara nemendur inn í þæfingu aftur (1. bekk , blautþæfing með sápu og vatni) nema þá fá þau að prófa þæfinganál ( þurrþæfingu ). Fyrstu árin æfa nemendur handsaum og síðan á miðstigi kemur vélsaumurinn inn. Við allar þessar grunn verkaðferðir sem taldar eru upp bæði hér að ofan og neðan eru það hendurnar ( hugurinn, hjartað ) sem vinna verkið en einnig eru skoðaðar vélrænar útgáfur af þeim. Við prófum sumar ve´lrænu útgáfurnar eins og prjónavélar og saumavél, s.s. fáum sumstaðar hjálp frá vélum eða tækninni, en veltum vöngum afthverju sumar verkaðferðir hafi ekki þróast vélar eins og í hekli!
Verkaðferðir:
1. bekkur. ÞÆFING: unnið með hráefnið ull, ullarkembu og úr henni þæft. Einnig er handsaumað.
2. bekkur. TÓVINNA/SPUNI: Ull kemd og prófað að búa til garnspotta, þ.e.spinna hann og puttaprjóna ef til vill úr honum ( eða öðru garni). Einnig handsaumað og hnútar hnýttir.
3. bekkur. VEFNAÐUR: Lærð eru grunnhandtök og hugtök í vefnaði. Einnig handsaumað.
4. bekkur. PRJÓN: lært að prjóna með allskonar mismunandi aðferður og tækjum, einnig er hekl kynnt, og handsaumað.
5. bekkur. VÉLSAUMUR. Prófað er að sauma á vél og nemendur kynnast virkni hennar. Einnig læra nemendur framhald í þæfingu, þ.e. þurrþæfing með nál.
6. bekkur. SKREYTING EFNA: saumaður er ýmiskonar ÚTSAUMUR og alskonar TEXTÍLLITUN er notuð til að skreyta efni, sem nýtt eru í vélsaumaðan nytjahlut eða skrautmun. Einnig er í boði að rýja efni og/eða þúfa.
7. bekkur. HEKL: Nemendur læra grunn í hekli. Síðan velur nemandi hvort hann búi til alveg nýtt verk þar sem hann skoðar sitt fegurðaskin, smekk og skapi eitthvað frumlegt. Eða hvort hann vilji frekar æfi sig í vinnuaðferð sem þau hafa lært ( þ.e. frá 6. , 5. , 4. , 3. , 2. eða 1. bekk) og rifji hana upp og þjálfi sig í henni.
1. bekkur
2. bekkur
3. bekkur
4. bekkur
5. bekkur
6. bekkur
7. bekkur